-
Mánudaga - föstudaga 08:00 - 16:00
-
Staðsetning: Smiðjuvegur 5, 200 Kópavogur
-
Sími: 420 4010
Viðgerðarmúr, þansteypa og þéttimúr frá Velosit fyrir steypu sem hefur brotnað, flagnað eða lekur
Hvað eru steypuviðgerðir?
Þegar steypa skemmist, t.d. vegna frosts, ryðgaðrar járnabindingar eða höggs, þarf að brjóta lausa steypu burt og byggja flötinn upp aftur með efni sem binst gömlu steypunni og þolir sama álag. Viðgerðarmúr frá Velosit er sementsbundinn, trefjastyrktur og rýrnar lítið, og uppfyllir kröfur staðalsins EN 1504-3 um steypuviðgerðir.
Fagefni selur viðgerðarefni frá þýska framleiðandanum Velosit. Við hjálpum þér að velja efni eftir því hvar skemmdin er, hve djúp hún er og hvaða álagi viðgerðin verður fyrir.
Hvenær þarf viðgerðarmúr?
- Flögnun og frostskemmdir á svölum, tröppum og útveggjum
- Steypa sem hefur sprungið frá ryðgaðri járnabindingu
- Holur, steypuhreiður og ójöfnur eftir mót
- Skemmdir í brunnum og fráveitumannvirkjum
- Bil undir vélum, súlum og stálbitum sem þarf að fylla
Hvaða efni á við hvað?
Viðgerðir á veggjum og í lofti
Velosit RM 202 er fínn viðgerðarmúr fyrir yfirborðsskemmdir á steypu, múr og náttúrusteini. Hann er þjáll og hentar sérstaklega vel í loft. Má leggja frá 0 upp í 100 mm á veggi og allt að 50 mm í loft. Flokkur R3. Fyrir þunnar viðgerðir, 0–25 mm, er líka kristallandi RM 211. RM 202 → RM 211 →
Hraðviðgerðir
Velosit RM 203 harðnar hratt: vinnslutíminn er um 10 mínútur og ganga má á viðgerðina eftir 1–1½ klst. Fyrir holur, steypuhreiður og viðgerðir sem þurfa að komast fljótt í notkun. Flokkur R3. RM 203 →
Djúpar skemmdir og burðarhlutar
Velosit RM 205 er grófur viðgerðarmúr fyrir 6–100 mm lag, t.d. á svölum, bitum og brúm. Hann er vatnsfælinn og með ryðvörn fyrir járnabindinguna. Flokkur R4. RM 205 →
Fráveita og súlfatálag
Velosit SR 207 er súlfatþolinn viðgerðarmúr fyrir brunna, skólphreinsistöðvar og önnur mannvirki í ætandi umhverfi. 6–100 mm lag. Flokkur R4. SR 207 →
Gólfviðgerðir, ílögn og mótunarmúr
Velosit SC 242 er hraðharðnandi ílögn, oft kölluð mótunarmúr eða þurrmúr, fyrir 10–100 mm lag á steyptum gólfum inni og úti. Ganga má á hana eftir 4 klst. Flokkur C50-F7. SC 242 →
Fleiri efni frá Velosit
Við seljum líka SC 244 trefjastyrkt flot, flísalím, grunna og yfirborðsefni frá Velosit, og útvegum önnur efni eftir þörfum. Allt frá Velosit →
Samanburður á efnunum
| Efni | Lagþykkt | Styrkur 28 d. | Flokkur | Umbúðir |
|---|---|---|---|---|
| RM 202 | 0–100 mm, loft ≤ 50 mm | 56 MPa | R3 | 25 kg |
| RM 203 | 0–100 mm, loft ≤ 50 mm | 54 MPa | R3 | 25 kg |
| RM 211 | 0–25 mm | 40 MPa | R3 | 25 kg |
| RM 205 | 6–100 mm | 50 MPa | R4 | 25 kg |
| SR 207 | 6–100 mm | 45 MPa | R4 | 25 kg |
| NG 512 | 12–120 mm | 90 MPa | R4 | 25 kg |
| NG 517 | 6–150 mm | 70 MPa | R4 | 20 kg |
| SC 242 | 10–100 mm | 51 MPa | C50-F7 | 20 kg |
| WP 101 | um 2 mm | 50 MPa | R3 | 25 kg |
| CW 111 | kústað, 2 umf. | 21 MPa eftir 1 dag | – | 25 kg |
Styrkur er þrýstistyrkur eftir 28 daga samkvæmt tækniblöðum Velosit. Flokkar R3 og R4 eru samkvæmt EN 1504-3, C50-F7 samkvæmt EN 13813.
Grunnur
Við mælum alltaf með að grunna. Undir viðgerðarmúr og þansteypu mælir Velosit með CP 201 viðloðunargrunni samkvæmt EN 1504-9, og hann fæst hjá okkur.
- RM 202 og RM 203 má líka grunna með sjálfu efninu, en RM 205, SR 207 og SC 242 þurfa CP 201 grunn á steypu
- Undir flot og flísalím er notaður akrýlgrunnur, t.d. Velosit PA 911 eða Alfix Planemix Primer
- Undirlagið þarf að vera 5–35 °C (SC 242: 10–35 °C)
Hvernig er gert við steypu?
Almenna ferlið í stuttu máli. Fylgið alltaf tækniblaði efnisins.
Undirbúningur
- Laus og skemmd steypa er brotin burt niður á heila steypu
- Ryð er hreinsað af járnabindingu sem kemur í ljós
- Flöturinn er hreinsaður og vættur svo hann sé rakur en án vatns á yfirborði
- Grunnur er borinn á
Lögn
- Viðgerðarmúr er hrærður með 11–18 % af hreinu vatni, eftir efni
- Lagt er í allt að 100 mm lagi í einni umferð á veggi
- Í heitu og þurru veðri er viðgerðinni haldið rakri í 3–4 klst.; annars þarf ekki að vökva
Ertu ekki viss um efnið?
Sendu okkur myndir af skemmdinni og segðu okkur hve stór og djúp hún er og hvort hún er á vegg, gólfi eða í lofti. Við hjálpum þér að velja efni.
Skjöl og gögn
Velosit RM 202
Fínn viðgerðarmúr, R3.
Velosit RM 203
Hraðharðnandi viðgerðarmúr, R3.
Velosit RM 205
Grófur viðgerðarmúr, R4.
Velosit SR 207
Súlfatþolinn viðgerðarmúr, R4.
Velosit NG 512
Þansteypa, 12–120 mm.
Velosit NG 517
Þansteypa, 6–150 mm.
Velosit SC 242
Hraðharðnandi ílögn.
Velosit WP 101
Þéttimúr.
Velosit WP 120
Teygjanlegur þéttimúr.
Fleiri efni frá Velosit
Allt vöruúrval framleiðandans.
Algengar spurningar um steypuviðgerðir
Hver er munurinn á R3 og R4?
Staðallinn EN 1504-3 flokkar viðgerðarmúr eftir styrk og eiginleikum. R4 er hæsti flokkurinn, með minnst 45 MPa þrýstistyrk, og er notaður þar sem viðgerðin ber álag, t.d. í bitum, súlum og svölum. R3 dugar fyrir yfirborðsviðgerðir sem bera minna álag.
Hve þykkt má leggja í einu?
RM 202 og RM 203 frá 0 upp í 100 mm á veggi og mest 50 mm í loft. RM 205 og SR 207 frá 6 upp í 100 mm. Í dýpri holur og bil undir vélum er notuð þansteypa, NG 512 upp í 120 mm og NG 517 upp í 150 mm.
Hvað er þansteypa?
Þansteypa (e. non-shrink grout) er fljótandi steypa sem rýrnar ekki við hörðnun heldur þenst örlítið á meðan hún er blaut. Þannig fyllir hún bilið alveg og ber álag. Hún er notuð undir vélar, stálsúlur og bita og til að festa kamba og ankeri.
Hvenær má ganga á viðgerðina?
Við 23 °C má ganga á RM 203 eftir 1–1½ klst., á SC 242 eftir 4 klst. og á NG 512 eftir 6 klst. Kuldi lengir tímann.
Má gera við steypu í frosti?
Nei. Undirlagið þarf að vera 5–35 °C og fyrir SC 242 10–35 °C. Viðgerðina þarf líka að verja gegn frosti á meðan hún harðnar.
Hvernig er kjallari rakaþéttur?
Með þéttimúr eins og WP 101 eða WP 120 sem er borinn á vegginn í um 2 mm lagi. WP 120 er teygjanlegur og brúar sprungur. Ef vatn lekur inn um sprungur þarf fyrst að þétta þær með inndælingu, sjá lekaþéttingu.
Hvað kostar efnið?
Verð er á vörusíðunum. Fyrir stærri verk gerum við tilboð.
Fáðu ráðgjöf um steypuviðgerðir
Sendu okkur myndir af skemmdinni. Ágúst Örn Ólafsson sölustjóri (agust@fagefni.is) og Arnar Bjarklind söluráðgjafi (arnar@fagefni.is) svara fyrirspurnum.
Vörur í þessari lausn

Þansteypa – Velosit NG 517

Mótunarmúr (ílögn) – Velosit SC 242

Rakaþéttimúr, teygjanlegur – Velosit WP 120

Þéttimúr, stífur – Velosit WP 101
8.080 kr. Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page
Akrýlgrunnur – Velosit PA 911
Price range: 7.750 kr. through 13.895 kr. Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page
Bindigrunnur og ryðvörn – Velosit CP 201
9.878 kr. Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page
Viðgerðarmúr, kristallandi – Velosit RM 211

Þéttimúr, kristallandi – Velosit CW 111

Hraðsement til að stöðva leka – Velosit PC 221

Filtmúr og þéttimúr, hagkvæmur – Velosit WP 100

Trefjaílögn, hraðþornandi – Velosit SC 244

Íblöndunarefni, latex – Velosit LE 910

Viðgerðarmúr, fínn – Velosit RM 202

Viðgerðarmúr, hraðharðnandi – Velosit RM 203

Viðgerðarmúr, grófur – Velosit RM 205

Viðgerðarmúr, súlfatþolinn – Velosit SR 207

Þansteypa og boltagrautur – Velosit NG 512

