-
Mánudaga - föstudaga 08:00 - 16:00
-
Staðsetning: Smiðjuvegur 5, 200 Kópavogur
-
Sími: 420 4010
Þansteypa – Velosit NG 517
4.090 kr.
Þansteypa fyrir undirsteypu og fyllingu þar sem bilið er allt frá 6 upp í 150 mm, t.d. undir vélum, súlum og í stórum holum í steypu.
- 6–150 mm bil
- 70 MPa eftir 28 daga, flokkur R4
- 45 mínútna vinnslutími
- 20 kg poki
Velosit NG 517 þansteypa
NG 517 þenst örlítið út meðan hún er blaut, svo hún binst vel við steypu og stál og fyllir bilið. Hún nær 44 MPa eftir sólarhring. Vatnsmagnið má stilla innan breiðs bils, svo hægt er að hafa hana fljótandi eða stífari eftir verkinu.
Þar sem krafist er meiri styrks, yfir 90 MPa, er NG 512 notuð, en hún er fyrir 12–120 mm bil.
Vinnsla
Hrærð með 11–13 % vatni (2,2–2,6 l í poka). Verja þarf hana og halda rakri í minnst 16 klst. á meðan hún harðnar.
Undirbúningur, grunnur og samanburður á öllum viðgerðarefnunum er á síðunni um steypuviðgerðir.
| Þyngd | 20 kg |
|---|---|
| Þykkt | 6–150 mm bil |
| Styrkur | 70 MPa eftir 28 daga |
| Notkun | Inni og úti |
| Vinnslutími | 45 mín við 23 °C |
| Efnisnotkun | 20 kg gefa um 9,9 l |
| Flokkur | R4 (EN 1504-3) |
| Vatn | 2,2–2,6 l í 20 kg poka |
| Umbúðir | 20 kg |





