-
Mánudaga - föstudaga 08:00 - 16:00
-
Staðsetning: Smiðjuvegur 5, 200 Kópavogur
-
Sími: 420 4010
Bindigrunnur og ryðvörn – Velosit CP 201
9.878 kr.
Sementsbundinn grunnur sem er borinn á steypu og járnabindingu áður en viðgerðarmúr er lagður. Hann bætir viðloðun múrsins og ver járnið gegn ryði.
- Undir RM-viðgerðarmúr frá Velosit
- Ryðvörn fyrir járnabindingu
- Viðloðun 2,8 MPa, flokkur R4
- 20 kg poki
Þú gætir einnig þurft
Velosit CP 201
CP 201 er þunnfljótandi, rýrnunarbætt sementsblanda. Hún er kústuð eða sprautuð á hreinsaða steypu og á járnabindingu sem kemur í ljós þegar skemmd steypa er brotin burt. Múrinn er yfirleitt lagður ofan í grunninn á meðan hann er enn blautur, sjá tækniblað. Grunninn má líka nota til að fylla loftbólur og holur í yfirborði.
Velosit mælir með CP 201 undir RM 205, SR 207 og SC 242, og hann bætir viðloðun undir RM 202 og RM 203.
Vinnsla
Notkun er um 1,6 kg/m² á hvern mm og vinnslutíminn 45–60 mínútur við 23 °C. Undirlagið þarf að vera 5–35 °C. Eftir 28 daga er þrýstistyrkurinn 46 MPa.
Undirbúningur og val á viðgerðarmúr er á síðunni um steypuviðgerðir.
| Þyngd | Á ekki við |
|---|---|
| Umbúðir | 20 kg poki |




