-
Mánudaga - föstudaga 08:00 - 16:00
-
Staðsetning: Smiðjuvegur 5, 200 Kópavogur
-
Sími: 420 4010
Viðgerðarmúr, hraðharðnandi – Velosit RM 203
7.999 kr.
Hraðharðnandi, trefjastyrktur viðgerðarmúr fyrir viðgerðir sem þurfa að komast fljótt í notkun, t.d. tröppur og gólf sem þarf að opna aftur sem fyrst.
- Vinnslutími um 10 mínútur, gangfær eftir 1–1½ klst.
- 0–100 mm á veggi, allt að 50 mm í loft
- 54 MPa eftir 28 daga, flokkur R3
- 25 kg poki
Þú gætir einnig þurft
Velosit RM 203 hraðviðgerðarmúr
RM 203 byrjar að taka sig eftir um 15 mínútur og hefur tekið sig eftir 40 mínútur. Eftir tvær klukkustundir hefur hann náð 14 MPa þrýstistyrk og 36 MPa eftir sólarhring. Hann hentar því vel þegar ekki má loka svæði lengi.
Vegna stutta vinnslutímans er aðeins hrært það magn sem hægt er að leggja á 10 mínútum. Fyrir stærri fleti og lengri vinnslu er RM 202 betri kostur.
Vinnsla
Hrærður með 15–18 % hreinu vatni (3,8–4,5 l í poka). Grunnað er með CP 201 eða þunnu lagi af sjálfum múrnum. Undirlagið þarf að vera 5–35 °C.
Undirbúningur, grunnur og samanburður á öllum viðgerðarefnunum er á síðunni um steypuviðgerðir.
| Þyngd | 25 kg |
|---|---|
| Þykkt | 0–100 mm (loft mest 50 mm) |
| Styrkur | 54 MPa eftir 28 daga |
| Notkun | Inni og úti |
| Gönguhæft | 1–1½ klst. |
| Vinnslutími | Um 10 mín við 23 °C |
| Efnisnotkun | Um 10 kg/m² í 6 mm lagi |
| Hraðharnandi | Já |
| Flokkur | R3 (EN 1504-3) |
| Vatn | 3,8–4,5 l í 25 kg poka |
| Umbúðir | 25 kg |



