-
Mánudaga - föstudaga 08:00 - 16:00
-
Staðsetning: Smiðjuvegur 5, 200 Kópavogur
-
Sími: 420 4010
Akrýlgrunnur – Velosit PA 911
Price range: 7.750 kr. through 13.895 kr.
Leysiefnalaus akrýlgrunnur undir flot, flísalím, múr og ílagnir. Hann lokar rakadrægu undirlagi svo það dregur ekki vatnið úr efninu sem fer ofan á, og bætir viðloðun. Hann er líka notaður til að rykbinda gólf á verktíma.
- Á steypu, múr, gifs og gifstrefjaplötur, inni og úti
- Þynntur með allt að 3 hlutum vatns
- Um 0,03–0,1 l/m²
- Þornar á 1–2 klst.
Þú gætir einnig þurft
Velosit PA 911 múrgrunnur
PA 911 er hvítur, lyktarlítill akrýlgrunnur án leysiefna. Hann er borinn á áður en lagt er flot, flísalím eða múr og jafnar rakadrægni undirlagsins, svo efnið sem fer ofan á harðnar jafnt og loðir vel.
Blöndun og ásetning
Grunnurinn er þynntur með vatni eftir því hve mikið undirlagið dregur í sig, mest 1 hluti grunnur á móti 3 hlutum vatns. Það hlutfall er algengast á steypu, en á þéttara undirlag er hann minna þynntur og jafnvel óþynntur, t.d. á timbur. Grunninum er kústað eða rúllað ríkulega á svo undirlagið drekki hann vel í sig, og mjög rakadrægt eða opið undirlag er grunnað tvisvar. Hann þarf að þorna í 1–2 klst. við 23 °C áður en lagt er yfir.
Hvaða grunnur á við?
- Undir flot, flísalím og múr: PA 911, eða Alfix Planemix Primer
- Undir viðgerðarmúr og þansteypu: CP 201 viðloðunargrunnur, sjá steypuviðgerðir
- Á raka steypu: epoxýgrunnurinn PR 303
Við mælum alltaf með að grunna áður en flot eða múr er lagt. Sjá líka Velosit SC 244 flot.
| Notkun | Inni og úti |
|---|---|
| Efnisnotkun | 0,03–0,1 l/m² |
| Blöndun | Allt að 1 hluti grunnur á móti 3 hlutum vatns |
| Þornunartími | 1–2 klst. við 23 °C |
| Undirlag | Steypa, múr, gifs og gifstrefjaplötur |
| Hitastig | 5–35 °C |
| Litur | Hvítur |
| Umbúðir | 10 kg, 5 Kg |




