Trefjaílögn, hraðþornandi – Velosit SC 244

5.299 kr.

Velosit SC 244 er hraðþornandi trefjastyrkt Ílögn/flotefni til jöfnunar á gólfum inni og úti. Gönguhæft eftir aðeins 4 klst og tilbúið undir flísar sama dag. Hægt að leggja önnur gólfefni eftir 24 – 48 klst. Öflug lausn með framúrskarandi floteiginleika, miklum styrk og breiðu notkunarsviði fyrir fagmenn.

Vefur framleiðanda

Þú gætir einnig þurft

Akrýlgrunnur – Velosit PA 911 Price range: 7.750 kr. through 13.895 kr.
Veldu

Velosit SC 244 er trefjastyrkt flotefni sem hentar bæði inni og úti. Þetta er hraðþornandi flotefni til jöfnunar sem býður upp á framúrskarandi floteiginleika, mikinn styrk og breitt notkunarsvið. Efnið er afhent tilbúið í 25 kg poka og hentar vel fyrir bæði hefðbundna gólfjöfnun og sérhæfðar lausnir eins og micro concrete og terrazzo útlit.

Kostir og eiginleikar

  • Hraðþornandi ílögn – gönguhæft eftir aðeins 4 klst
  • Hægt að leggja flísar eftir 4 klst og önnur gólfefni eftir 24–48 klst
  • Trefjastyrkt – minni sprungumyndun og meiri ending
  • Mikill styrkur – yfir 50 MPa lokastyrkur
  • Breitt þykktarsvið – 10 til 120 mm í einni lögun
  • Frábær floteiginleiki – auðvelt í vinnslu og jafnt yfirborð
  • Hentar á gólfhita – stöðugt efni með litla rýrnun
  • Slípanlegt – hægt að fá terrazzo eða micro concrete áferð
  • Hagkvæm lausn fyrir sérverkefni eins og borðplötur
  • Mjög gott vatnsþol – tapar ekki styrk undir vatni

Tæknilegar upplýsingar

  • Þyngd: 25 kg poki
  • Þykkt: 10–120 mm
  • Gengið á eftir: ca. 4 klst
  • Flísar: ca. 4 klst
  • Önnur gólfefni: 24–48 klst
  • Vinnslutími: 30–40 mínútur
  • Vatnsmagn: 2,5–2,8 L á poka
  • Þrýstiþol: >50 MPa (28 dagar)
  • Efnisnotkun: ca. 19 kg/m² við 10 mm þykkt
  • Notkun: inni og úti
  • Rýrnun: mjög lítil
  • Uppfyllir staðal: EN 13813 (CT-C50-F7)

Notkun og notkunarsvið

Velosit SC 244 er hannað til notkunar bæði innan- og utanhúss og hentar á fjölbreytt undirlag. Það er sérstaklega hentugt fyrir steypt gólf þar sem þarf að jafna yfirborð áður en lokaefni er lagt. Efnið virkar vel með gólfhita, bæði vatns- og rafmagnskerfum, og hentar einnig fyrir einangruð gólf eða þar sem notaðar eru himnur. Flotefnið er notað við flotun í íbúðarhúsnæði, atvinnuhúsnæði og iðnaðarrýmum þar sem krafist er hraðrar vinnslu og mikils styrks.

Undirvinna

Undirlag þarf að vera hreint, burðarþolið og laust við ryk, fitu og önnur efni sem geta haft áhrif á viðloðun. Best er að undirbúa steypt yfirborð með sandblæstri, háþrýstiþvotti eða sambærilegri aðferð til að opna yfirborðið. Viðloðunarkraftur ætti að vera að lágmarki 1,0 MPa. Ef vatnsleki eða sprungur eru til staðar þarf að laga þær áður en flotefnið er lagt.

Grunnur

Grunna skal undirlag með viðeigandi grunni, t.d. sementbundnum grunni(setja link inn) eða akrýl grunn(setja link) sem tryggir góða viðloðun. Flotefnið er lagt “blautt í blautt” strax eftir grunnun. Á stáli þarf að nota viðeigandi tæringarvörn og tengigrunn áður en efnið er lagt.

Blöndun og lögn

Velosit SC 244 er blandað með hreinu vatni áður en það er lagt. Notið um 2,5–2,8 lítra af vatni á hvern 25 kg poka og blandið þar til kekkjalaus og jafnvæg blanda myndast. Efnið hefur um 40 mínútna vinnslutíma við eðlilegar aðstæður. Mikilvægt er að fara ekki yfir ráðlagt vatnsmagn þar sem það getur haft áhrif á styrk og eiginleika efnisins.

Niðurlögn

Efnið er hellt á undirlagið og jafnað út með sladdara eða sambærilegu verkfæri að æskilegri þykkt. Mikilvægt er að vinna í svæðum sem hægt er að klára innan vinnslutíma efnisins. Hægt er að leggja efnið með viðeigandi dælu  eða handvirkt eftir umfangi verks. Loftbólur eru fjarlægðar með því að vinna yfir yfirborðið með viðeigandi verkfærum(setja link). Forðast skal að leggja yfir ómeðhöndlaðar sprungur eða hreyfifúgur þar sem það getur leitt til sprungumyndunar í yfirborði.

Velosit SC 244 hentar vel fyrir flotun áður en gólfefni eru lögð.

Algengar spurningar

– Hversu fljótt má ganga á efnið?
Efnið er gönguhæft eftir um 4 klukkustundir við eðlilegar aðstæður.

– Hvenær má leggja gólfefni ofan á?
Flísar má leggja eftir 4 klst, en raka viðkvæm efni eftir um 48 klst.

– Er hægt að nota efnið á gólfhita?
Já, Velosit SC 244 hentar vel yfir gólfhita og heldur stöðugleika.

– Er hægt að slípa efnið og nota sem lokaáferð?
Já, efnið hentar vel sem micro concrete og terrazzo yfirborð með slípun.

Þyngd25 kg
Þykkt

10 – 120 mm

Styrkur

50 MPa

Notkun

Inni og úti

Gönguhæft

ca. 4 klst

Vinnslutími

30 – 40 mín

Efnisnotkun

19 kg/m² miðað við lagþykkt 10mm

Hraðharnandi

Já

Hentar á gólfhita

Já

Tækniblað / Data Sheet- Enska / English

Sækja

TDS - SC-244-English

Öryggisblað / MSD - Enska / English

Sækja

Öryggisblað fyrir Vel-SC244 á Ensku MSD Safedty datasheet in English

EPD Velosit SC 244

Sækja
Velosit SC 244 hraðþornandi trefjastyrkt flotefni 25 kg poki
Trefjaílögn, hraðþornandi – Velosit SC 244

5.299 kr.

Setja í körfu