Filtmúr og þéttimúr, hagkvæmur – Velosit WP 100

5.227 kr.

Hafðu samband fyrir afhendingartíma

Hagkvæmur, sementsbundinn þéttimúr fyrir steypu og hlaðna veggi, t.d. í kjöllurum, lyftugryfjum og vatnstönkum. Hann er líka mikið notaður sem filtmúr á veggi, því áferðin verður mjög slétt og fín.

  • Þolir 5 bar vatnsþrýsting að framan og 1,5 bar að aftan
  • Um 2 mm lag í 1–2 umferðum
  • Slétt og fín áferð sem filtmúr
  • 20 kg poki, grár

Vefur framleiðanda

Þú gætir einnig þurft

Velosit WP 100

WP 100 er einfaldari og ódýrari útgáfa af WP 101. Hann er notaður á sömu staði, en þolir minni vatnsþrýsting: 5 bar að framan og 1,5 bar að aftan, á móti 13 og 5 bar í WP 101. Hann hentar því vel þar sem vatnsþrýstingur er hóflegur, t.d. gegn jarðraka í kjöllurum og raka sem leitar upp í veggi. Hann er líka notaður sem grunnlag undir teygjanlega þéttingu.

Á veggi sem hreyfast eða eru sprungnir er teygjanlegi WP 120 betri kostur, og CW 111 þéttir steypuna sjálfa með kristöllum.

Sem filtmúr

Margir nota WP 100 til að filta veggi, því hann gefur mjög slétta og fína áferð. Veggurinn fær þá um leið vatnsfælið og slitsterkt yfirborð sem ver gegn raka.

Vinnsla

Hrærður með 21–26 % vatni (4,2–5,2 l í poka) og kústaður í tveimur umferðum, 1,7 kg/m² hvor, eða dreginn á í einni. Minnst 3 klst. milli umferða. Ganga má á hann eftir 4–6 klst. og hann þolir vatnsþrýsting eftir 3 daga. Undirlagið þarf að vera 5–35 °C.

Fleiri efni til að þétta kjallara og vatnstanka eru í flokknum þéttimúr og vatnsþétting.

Vatnsþrýstingur

5 bar að framan, 1,5 bar að aftan

Lagþykkt

Um 2 mm í 1–2 umferðum

Efnisnotkun

1,7 kg/m² í umferð (kústað)

Styrkur

30 MPa eftir 28 daga

Flokkur

R3 (EN 1504-3)

Vatn

4,2–5,2 l í 20 kg poka

Litur

Grár

Umbúðir

20 kg

Tækniblað Velosit WP 100 (enska)

Sækja

Öryggisblað Velosit WP 100 (enska)

Sækja

Skoðaðu einnig þessa valkosti

Velosit WP 100 þéttimúr og fínmúr í 20 kg poka
Filtmúr og þéttimúr, hagkvæmur – Velosit WP 100

5.227 kr.

Hafðu samband fyrir afhendingartíma

Setja í körfu