Svalaþétting, PMMA – Triflex ProTerra

67.624 kr.

PMMA-vatnsþétting sem er lögð með flísdúk yfir allan flöt svala, svalaganga og þaksvala. Hún er þéttilagið í BTS-P-kerfinu, sem er notað þar sem íbúð eða upphitað rými er undir.

  • Lágmark 3,00 kg/m²
  • Regnhelt eftir um 45 mín. og gönguhæft eftir um 1 klst. við 20 °C
  • Vinnsluhiti 0 til +35 °C
  • 10 kg fata, grátt (7032)

Þú gætir einnig þurft

Herðir fyrir PMMA-efni – Triflex Catalyst Price range: 1.790 kr. through 56.700 kr.
Veldu
Lokaumferð, lituð PMMA – Triflex Cryl Finish 205 Price range: 59.900 kr. through 96.489 kr.
Veldu
Vörunúmer: TRI-22920-732-145 Flokkar: , Lausn: Birgi:

Triflex ProTerra

ProDetail þéttir kanta og samskeyti, en ProTerra er lagt yfir sjálfan flötinn. Fyrst er ProTerra borið á, Special Fleece lagður í blautt efnið og síðan önnur umferð ofan á. Útkoman er samfelld vatnsþétting án samskeyta sem brúar sprungur, þolir basa og vatn og hleypir vatnsgufu í gegn.

Ofan á ProTerra kemur slitlag úr ProFloor og lokaumferð. Á steypu er grunnað með Cryl Primer 276.

Vinnsla

Í 10 kg fötu fara 0,40 kg af herði við 0–15 °C og 0,20 kg við 15–35 °C. Pottlífið er um 15 mínútur og fullt þol næst eftir um 3 klukkustundir við 20 °C. Yfirborðið þarf að vera minnst 3 °C yfir daggarmarki.

ProTerra hefur evrópskt tæknimat samkvæmt ETAG 005 og er CE-merkt. Það er flokkað BROOF (t1–t4) gagnvart neistaflugi og geislahita.

Triflex hefur gefið út myndband sem sýnir hvernig ProTerra er lagt. Meira um kerfin á síðunni um Triflex svalaþéttingu.

Tækniblað Triflex ProTerra (enska)

Sækja
Triflex ProTerra – vatnsþétting
Svalaþétting, PMMA – Triflex ProTerra

67.624 kr.

Setja í körfu