-
Mánudaga - föstudaga 08:00 - 16:00
-
Staðsetning: Smiðjuvegur 5, 200 Kópavogur
-
Sími: 420 4010
Flísdúkur fyrir PMMA-þéttingu – Triflex Special Fleece
Price range: 1.204 kr. through 80.575 kr.
Flísdúkur sem lagður er í blautt ProDetail eða ProTerra. Hann styrkir þéttinguna, heldur þykktinni jafnri og gerir henni kleift að brúa sprungur.
- Rúllur frá 15 til 105 cm á breidd, líka seldur í metratali
- Minnst 5 cm skörun á samskeytum
Þú gætir einnig þurft
Triflex Special Fleece
Flísdúkurinn er úr pólýester, 110 g/m², og hann styrkir þéttinguna, brúar sprungur og tryggir rétta lagþykkt. Á honum er prentað 5 cm rúðunet sem auðveldar að sníða hann og halda réttri skörun.
Dúkurinn er lagður í fyrstu umferð af þéttiefninu og þrýst niður svo hann blotni í gegn, og síðan er borið yfir hann. Hann er hluti af öllum svalakerfum Triflex þar sem kverkar, samskeyti og kantar eru þétt.
Mjóu rúllurnar (15–25 cm) henta í kverkar, á samskeyti og kringum stoðir og niðurföll. Þar sem flötur mætir vegg er þéttingin minnst 15 cm breið. Breiðu rúllurnar (70 og 105 cm) eru notaðar þegar heill flötur er styrktur, eins og í BTS-P. Í minni verk má kaupa dúkinn í metratali. Í innhorn og úthorn eru til tilsniðin flísdúkshorn.
Flísdúkur PF
PF-dúkurinn er örgötóttur. Götin gera það að verkum að kvoðan gegnvætir hann hraðar og minni hætta er á loftbólum undir honum. Hann er notaður á sama hátt og venjulegi dúkurinn.
Meira um kerfin á síðunni um Triflex svalaþéttingu.
| Stærð | 15 cm × 50 m, 20 cm × 50 m, 25 cm × 50 m, 70 cm × 50 m, 105 cm × 52,5 m, 15 cm, metri, 70 cm, metri, 105 cm, metri, 26,25 cm × 50 m, PF (örgötóttur) |
|---|


