Þéttiefni fyrir kverkar og samskeyti, PMMA – Triflex ProDetail

Price range: 38.900 kr. through 93.390 kr.

Teygjanlegt og hraðvirkt PMMA-þéttiefni sem virkar eins og dúkur þegar það þornar. Það er lagt með flísdúk í kverkar og kringum þakglugga, túður, niðurföll og aðra hluti sem standa upp úr þökum og svölum.

  • Regnhelt eftir um 30 mín. og gönguhæft eftir um 45 mín. við 20 °C
  • Má leggja niður í −5 °C
  • Evrópskt tæknimat (ETAG 005) og CE-merkt
  • 5 og 15 kg fötur, grátt (7032)

Þú gætir einnig þurft

Flísdúkur fyrir PMMA-þéttingu – Triflex Special Fleece Price range: 1.204 kr. through 80.575 kr.
Veldu
Herðir fyrir PMMA-efni – Triflex Catalyst Price range: 1.790 kr. through 56.700 kr.
Veldu
Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , Lausn: Birgi:

Triflex ProDetail

ProDetail er tveggja þátta þéttikvoða úr PMMA, í raun kaldbræddur dúkur í dós. Það er lagt blautt og Special Fleece-flísdúkur lagður í, og þá myndast samskeytalaus þétting sem helst teygjanleg í kulda og brúar sprungur. Efnið hleypir vatnsgufu í gegn og er án leysiefna, þótt lyktin sé sterk meðan það er borið á.

ProDetail loðir við flest byggingarefni, t.d. steypu, múr, ál, stál, plast og timbur. Það er notað til að þétta smáatriði á flötum þökum, svölum, svalagöngum og í bílastæðahúsum, og er hluti af öllum svalakerfum Triflex. Það er rótarþolið og flokkað BROOF (t1–t4). Enginn eldur er notaður við lögnina og því fylgir henni engin brunahætta.

Starfsfólk Fagefnis hefur vottun frá Triflex í notkun ProDetail og getur ráðlagt um frágang á erfiðum stöðum.

Vinnsla í kulda

ProDetail má leggja við lofthita frá −5 °C til +40 °C og undirlagshita frá −5 °C til +50 °C. Yfirborðið þarf þó að vera minnst 3 °C yfir daggarmarki, annars getur myndast rakafilma sem kemur í veg fyrir viðloðun. Við mælum með að mæla bæði hita undirlagsins og rakastig áður en byrjað er.

Í 15 kg fötu fara 0,60 kg af herði við −5 til +15 °C en 0,30 kg við +15 til +40 °C. Pottlífið er um 25 mínútur. Efnismagn er minnst 3,00 kg/m² á sléttan flöt.

Grunnur

Á steypu og múr er grunnað með Cryl Primer 276, sem harðnar með sama herði.

Sjá einnig síðuna um svalaþéttingu með Triflex.

Umbúðir

15 kg, 5 kg

Tækniblað Triflex ProDetail (enska)

Sækja
Triflex ProDetail – þéttiefni
Þéttiefni fyrir kverkar og samskeyti, PMMA – Triflex ProDetail

Price range: 38.900 kr. through 93.390 kr.

Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page