-
Mánudaga - föstudaga 08:00 - 16:00
-
Staðsetning: Smiðjuvegur 5, 200 Kópavogur
-
Sími: 420 4010
Slitlag á svalir, PMMA – Triflex ProFloor
Price range: 14.995 kr. through 54.590 kr.
Sjálfjafnandi PMMA-slitlag sem tekur við álagi frá borðum, stólum og gangandi umferð á svölum og svalagöngum. Í þriggja þátta ProFloor eru vökvinn (R) og duftið (S) hrærð saman ásamt herði. ProFloor RS 2K er tveggja þátta og kemur í einni 15 kg fötu.
- Lágmark 4,00 kg/m², um 3–4 mm
- Regnhelt eftir um 30 mín. og gönguhæft eftir um 1 klst. við 20 °C
- Vinnsluhiti 0 til +35 °C
- Ein blanda: 10 kg R + 23 kg S
Þú gætir einnig þurft
Triflex ProFloor
ProFloor er slitlagið í svalakerfum Triflex. Í BFS fer það beint á grunninn og í BTS-P ofan á ProTerra-vatnsþéttinguna. Efnið er vatnshelt, þolir veður og UV-geislun og hægt er að aka á það.
Ein blanda er ein fata af ProFloor R (10 kg) og einn poki af ProFloor S (23 kg), og herðirinn Triflex Catalyst eftir hitastigi. Blöndunni er dreift með tenntum spaða og hún jöfnuð. Pottlífið er um 15 mínútur og fullt þol næst eftir um 2 klukkustundir við 20 °C.
Ofan á ProFloor kemur Cryl Finish 205 í lit, oft með Micro Chips eða kvartssandi.
ProFloor RS 2K og S1
ProFloor RS 2K er tveggja þátta slitlag í 15 kg fötu: kvoðan og herðirinn, án dufts. Efnismagn og þurrktímar eru þeir sömu, minnst 4,00 kg/m² og gönguhæft eftir um klukkustund. Við útvegum líka ProFloor S1, eldtefjandi duft fyrir flóttaleiðir og svalaganga (BFS S1 og BTS-P S1). Tækniblöð beggja eru hér á síðunni.
Meira um val á kerfi á síðunni um Triflex svalaþéttingu.
| Gerð | ProFloor R – vökvi, 10 kg, ProFloor S – duft, 23 kg, ProFloor RS 2K – 15 kg |
|---|


