Námskeið fyrir iðnaðarmenn sem fást við frágang þaka, svala og annara yfirborðsflata húsa sem þurfa að vera vatnsþéttir um fljótandi vatnsþéttingarlausnir frá Tiflex byggðum á PMMA.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Tegundir og eiginleika þéttiefna frá Triflex.
  • Notkunarsvið þéttiefna og val fyrir mismunandi byggingarhluta, þök og svalir.
  • Verklýsingar og kröfur við notkun á efnunum.
  • Mat og undirbúning undirlags.
  • Meðferð og vinnu við lagningu þéttiefna.
  • Frágang og viðhald.

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Þekkja notkunarsvið þéttiefna frá Triflex
  • Geta unnið með vörur frá Triflex með réttum hætti.
  • Verða viðurkenndur í Triflex lausnum sem fjallað er um á námskeiðinu.

Aðrar upplýsingar:

Námskeiðið er bæði bóklegt og verklegt. Unnið verður með Triflex efnin í kennslusal og eru þátttakendur beðnir um að mæta í klæðnaði við hæfi. Námskeiðið er haldið í samvinnu við Fagefni ehf og Triflex GMBH & CO KG í Þýskalandi