Lýsing
Þar sem sprungur hafa myndast í steinsteypu og þá sérstaklega í burðarveggjum þarf að styrkja burðarvirkið með því að dæla réttu inndælingarefni í sprungurnar og einnig , einkum ef sprungur er orðnar sverari en ca 3-4 mm , saga þverraufar yfir sprungurnar og koma fyrir litlum þynnum af carbon fiber renningum og epoxy lími. Með þessum aðferðum endurheimtum við fyrri styrk og oft gott betur en það.