-
Mánudaga - föstudaga 08:00 - 16:00
-
Staðsetning: Smiðjuvegur 5, 200 Kópavogur
-
Sími: 420 4010
Hvað er inndæling?
Við lekaþéttingu með inndælingu eru boraðar holur að sprungunni og nipplar settir í þær. Kvoðu eða froðu er svo dælt inn undir þrýstingi, svo efnið fyllir sprunguna innan frá og harðnar þar. Oftast þarf hvorki að brjóta upp steypu né grafa frá veggjum.
Fagefni selur inndælingarefni frá þýska framleiðandanum Arcan, ásamt nipplum, kúplingum og varnarhúð. Algengustu efnin eru til á lager.
Hvenær er dælt?
- Leki í kjallara eða bílakjallara
- Sprungur í steyptum veggjum og gólfum
- Leki um vinnuskil og steypuhreiður
- Holrými í steypu eða jarðvegi sem þarf að fylla
- Fyrirbyggjandi í nýbyggingum: inndælingarslanga lögð í steypuskil áður en steypt er, svo hægt sé að dæla síðar án þess að bora
Hvaða efni á við hvað?
Stöðva rennandi vatn hratt
HydroBloc 510 er einsþátta froða sem hvarfast hratt og þenst mikið út. Notuð til að stöðva rennandi vatn og fylla holrými. Hvarftímann má stilla með flýti. HydroBloc 510 →
Teygjanleg froða gegn vatni
HydroFlex 622 er einsþátta PU-kvoða sem þenst út í teygjanlega, þétta froðu þegar hún kemst í snertingu við vatn. Stöðvar virkan leka og lokar steypuhreiðrum. HydroFlex 622 →
Þétta rakar sprungur
HydroBloc 620 Integral er einsþátta PU-kvoða sem myndar fína, seiga froðu og skríður inn í smæstu glufur. Harðnar á um 10 mínútum. Fyrir mjög rakar sprungur og vinnuskil, en er ekki ætluð til að stöðva rennandi vatn. HydroBloc 620 →
Sveigjanleg þétting sem heldur
HydroBloc 575 Integral er mjög teygjanleg kvoða sem freyðir ekki. Hún bólgnar í vatni, svo hún lokar sjálf ef sprungan hreyfist eða vatn kemst aftur að. Hentar líka í kulda. HydroBloc 575 →
Hreinna verk
Trennfix 480 er varnarhúð sem borin er á yfirborðið áður en dælt er. Kvoða sem lekur út festist þá ekki við steypu eða málningu og þrifin verða mun auðveldari. Trennfix 480 →
Fleiri efni frá Arcan
Við útvegum önnur efni frá Arcan eftir þörfum, til dæmis HydroBloc Injekt 583, akrýlkvoðu sem bólgnar í vatni og er notuð í endurdælanlegar inndælingarslöngur. Hafðu samband. Nánar um 583 →
Samanburður á efnunum
| Eiginleiki | HydroBloc 510 | HydroFlex 622 | HydroBloc 620 | HydroBloc 575 |
|---|---|---|---|---|
| Gerð | PU-froða, hörð | PU-froða, teygjanleg | PU-kvoða, lítil froða | Úreakvoða, freyðir ekki |
| Þættir | Einsþátta | Einsþátta, hvarfast við vatn | Einsþátta | Einsþátta |
| Eftir hörðnun | Hörð, fínholótt froða | Teygjanleg froða | Seig, fín froða | Mjög teygjanleg, bólgnar í vatni |
| Stöðvar rennandi vatn | Já | Já | Nei | Að vissu marki |
Búnaður
Það sem þarf auk efnisins. Fæst allt hjá okkur.
- Inndælingarnipplar: standard, einstefnu og með pönnuhaus, 10 og 13 mm
- Kúplingar fyrir nippla
- Trennfix 480 varnarhúð
- Inndælingarslöngur og uppsetningarsett til að leggja í steypuskil, sjá inndælingarslöngur
- Nipplar og kúplingar eru í flokknum inndælingarnipplar og fylgihlutir
Hvernig er dælt?
Almenna ferlið í stuttu máli. Fylgið alltaf tækniblaði efnisins sem notað er.
Undirbúningur
- Sprungan er hreinsuð og metin
- Holur eru boraðar að sprungunni og nipplar settir í
- Trennfix 480 er borin á yfirborðið í kring
Inndæling
- Efninu er dælt inn um einn nippil í einu þar til það kemur út um þann næsta
- Þegar efnið hefur harðnað eru nipplarnir fjarlægðir og yfirborðið lagað
Ertu ekki viss um efnið?
Sendu okkur myndir af lekanum eða sprungunni og segðu okkur hvort vatn renni inn. Við hjálpum þér að velja rétt efni og búnað.
Skjöl og gögn
HydroFlex 622
Teygjanleg froða gegn vatni.
HydroBloc 620 Integral
Kvoða fyrir rakar sprungur og vinnuskil.
HydroBloc 575 Integral
Teygjanleg kvoða sem bólgnar í vatni.
Trennfix 480
Varnarhúð fyrir inndælingu.
Fleiri efni frá Arcan
Allt vöruúrval framleiðandans.
Algengar spurningar um lekaþéttingu
Hvaða efni stöðvar rennandi vatn?
HydroBloc 510, sem verður að harðri froðu og hvarfast hratt, og HydroFlex 622, sem verður að teygjanlegri froðu. HydroBloc 575 Integral getur líka stöðvað rennandi vatn að vissu marki án þess að dæla froðu fyrst.
Hver er munurinn á froðu og kvoðu?
Froða þenst út og fyllir holrými, og er notuð til að stöðva vatn. Kvoða er þynnri, smýgur inn í fínar sprungur og þéttir þær. Arcan mælir með að fylgja froðu eftir með kvoðu til að fá varanlega þéttingu.
Þarf að blanda efnin?
Nei. HydroBloc 510, HydroFlex 622, HydroBloc 620 og HydroBloc 575 eru einsþátta og tilbúin til notkunar. Rakinn í steypunni kemur hvarfinu af stað.
Má dæla í blauta steypu?
Já. Efnin eru gerð fyrir rakar og blautar aðstæður og loða vel við blauta steypu.
Hvaða efni hentar í kulda?
Integral-efnin frá Arcan bindast hratt, líka við lágt hitastig, og HydroBloc 575 Integral hentar sérstaklega í kulda.
Seljið þið nippla og kúplingar?
Já, bæði standard nippla, einstefnunippla og nippla með pönnuhaus, í 10 og 13 mm, ásamt kúplingum. Þú finnur þá í flokknum inndælingarnipplar og fylgihlutir.
Hvað kostar lekaþétting?
Verð á efnum sem eru til á lager er á vörusíðunum. Fyrir stærri verk gerum við tilboð. Sendu okkur myndir og lýsingu á verkinu.
Fáðu ráðgjöf um lekaþéttingu
Sendu okkur myndir af lekanum eða sprungunni. Ágúst Örn Ólafsson sölustjóri (agust@fagefni.is) og Arnar Bjarklind söluráðgjafi (arnar@fagefni.is) svara fyrirspurnum.
Vörur í þessari lausn

Inndælingarefni, varanlega vatnsbólgnandi – Arcan HydroBloc 575 Integral
Price range: 20.190 kr. through 39.950 kr. Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page
Borholumúr eftir inndælingu – Arcan SealFix 930
Price range: 3.900 kr. through 24.980 kr. Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page
Þéttifroða – Arcan HydroFlex 622

Inndælingarnippill, standard
Price range: 210 kr. through 590 kr. Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page
Inndælingarnippill með pönnuhaus
Price range: 275 kr. through 590 kr. Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page
Einstefnunippill (1-Day)
Price range: 350 kr. through 452 kr. Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page
Kúpling fyrir inndælingarnippla
Price range: 1.008 kr. through 2.746 kr. Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page
Varnarhúð við inndælingu – Arcan Trennfix 480
Price range: 18.750 kr. through 32.500 kr. Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page
Þéttifroða, hraðvirk – Arcan HydroBloc 510

Inndælingarslanga, fléttuð, 100 m – Izoservice

Uppsetningarsett fyrir inndælingarslöngur, 16 × 6 m – Izoservice

Fylgihlutir fyrir inndælingarslöngur – Izoservice
Price range: 50 kr. through 720 kr. Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page
Inndælingardæla, rafknúin – Izoservice IZOPRESS 400

Inndælingardæla, loftknúin – Izoservice IZOPRESS Pro 1K-33

Inndælingardæla, tvíþátta – Izoservice IZOPRESS Pro 2K-25

Inndælingardæla fyrir sementsefju og krem, lágþrýstingur – Izoservice IZOPRESS 500

Inndælingarefni, freyðandi – Arcan HydroBloc 620 Integral
Price range: 9.490 kr. through 35.995 kr. Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page
Hreinsiefni fyrir harðnaða kvoðu – Arcan HydroClean 524
Price range: 5.129 kr. through 31.498 kr. Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page

