-
Mánudaga - föstudaga 08:00 - 16:00
-
Staðsetning: Smiðjuvegur 5, 200 Kópavogur
-
Sími: 420 4010
Inndælingarslanga, fléttuð, 100 m – Izoservice
79.995 kr.
Fléttuð inndælingarslanga frá Izoservice sem lögð er í steypuskil áður en steypt er. Ef skilin leka síðar er dælt PU-kvoðu eða akrýlgeli inn í slönguna og efnið þéttir skilin eftir allri lengdinni.
- Fléttuð og sveigjanleg, líka í kulda
- Krossskurðir á 70 mm bili dreifa efninu jafnt
- Mest 8 m í hverjum hluta
- Seld í heilum 100 m rúllum
Sjá einnig festingar, klemmur og tengistykki og tilbúið uppsetningarsett.
Þú gætir einnig þurft
Hvað er inndælingarslanga?
Inndælingarslanga er gataslanga sem lögð er í steypuskil, til dæmis milli botnplötu og veggjar, áður en steypt er. Hún situr í steypunni þar til á þarf að halda. Ef skilin leka er inndælingarefni dælt inn í slönguna. Efnið fer út um götin eftir allri lengdinni, fyllir holrými og sprungur í skilunum og lokar leiðinni fyrir vatnið.
Notkun
- Vinnuskil og steypuskil í kjöllurum, botnplötum og veggjum
- Þétting með rörum og lögnum sem liggja í gegnum steypu
Uppsetning
Slangan er fest á eldri steypuna í skilunum með festingum á um 20 cm bili, þannig að hún liggi þétt að steypunni. Slöngur mega ekki liggja í kross og samsíða slöngur eiga að vera með um 15 cm bili. Hver hluti er mest 8 m langur. Í hvorn enda er tengd áfyllingarslanga sem leidd er út úr mótinu, svo hægt sé að dæla í slönguna og lofta hana eftir að steypt hefur verið.
Inndæling
Slangan hentar fyrir einsþátta og tvíþátta PU-kvoðu og akrýlgel. Fagefni selur inndælingarefni frá Arcan og inndælingarnippla og ráðleggur um val á efni.
Tæknigögn
| Framleiðandi | Izoservice (Póllandi) |
| Gerð | Fléttuð inndælingarslanga (IZOPRESS H2) |
| Innra / ytra þvermál | 5 / 11 mm |
| Götun | Tvöföld göt, 8 mm krossskurðir á 70 mm bili |
| Hámarkslengd hluta | 8 m |
| Inndælingarefni | Einsþátta og tvíþátta PU-kvoða, akrýlgel |
| Umbúðir | 100 m rúlla, 11,2 kg |
Nánar um aðferðina á síðunni um lekaþéttingu.



