-
Mánudaga - föstudaga 08:00 - 16:00
-
Staðsetning: Smiðjuvegur 5, 200 Kópavogur
-
Sími: 420 4010
Inndælingardæla, rafknúin – Izoservice IZOPRESS 400
320.000 kr.
Hafðu samband fyrir afhendingartíma
Rafknúin þindardæla frá Izoservice fyrir þéttingar- og styrkingarinndælingu með PU- og epoxýefnum.
- Allt að 220 bar vinnuþrýstingur
- 4 l/mín. afköst
- 230 V, 0,9 kW mótor
- 6 l trekt, 24 kg
Þú gætir einnig þurft
IZOPRESS 400 – rafknúin inndælingardæla fyrir PU og epoxý
IZOPRESS 400 er þindardæla frá pólska framleiðandanum Izoservice, gerð fyrir inndælingu í sprungur, steypuskil og lekastaði í steypu. Hún nær allt að 220 bar, gengur fyrir venjulegri 230 V innstungu og hentar bæði til að stöðva leka með PU-efnum og til að líma saman sprungur með epoxý.
Dælan er einföld og sterkbyggð og fljótlegt að þrífa hana eftir notkun. Hún er með 6 lítra trekt, vegur 24 kg og dælir efninu allt að 20 m leið. Á hana má setja inndælingarventil eða sprautubyssu, og með réttri byssu má líka sprauta grunni, lakki og vatnsþynnanlegri málningu.
Hentar fyrir
- PU-inndælingarefni og PU-þéttifroðu
- Epoxýkvoðu
- Vatnsþynnanleg efni
Helstu eiginleikar
- Hár vinnuþrýstingur, allt að 220 bar
- Jöfn afköst og nákvæm skömmtun
- Gengur fyrir rafmagni, engin loftpressa nauðsynleg
- Inndælingarventill eða sprautubyssa
- Einföld í þrifum og viðhaldi
Tækniupplýsingar
| Framleiðandi | Izoservice (Pólland) |
| Gerð | IZOPRESS 400 |
| Tegund | Rafknúin þindardæla |
| Vörunúmer framleiðanda | 06004 |
| Mótor | 0,9 kW |
| Rafmagn | 230 V / 50 Hz |
| Afköst | 4 l/mín. |
| Hámarks vinnuþrýstingur | 220 bar |
| Hámarks dælulengd | 20 m |
| Hljóðstig | 75 dB |
| Rafmagnssnúra | 3 m |
| Trekt | 6 l |
| Þyngd | 24 kg |
Inndælingarefnin frá Arcan sem við seljum eru undir inndælingarefni, og nipplar og kúplingar eru seld sér.




