-
Mánudaga - föstudaga 08:00 - 16:00
-
Staðsetning: Smiðjuvegur 5, 200 Kópavogur
-
Sími: 420 4010
Viðhaldsefni fyrir inndælingardælur – Arcan HydroMoll 522
14.950 kr.
Viðhalds- og varnarefni fyrir inndælingardælur og slöngur. Heldur þéttingum, ventlum og slöngum mjúkum á milli verka svo dælan endist lengur.
- Notað á eftir hreinsiefni, áður en dælan er geymd
- Fyrir eins- og tvíþátta inndælingardælur
- 5 kg
Arcan HydroMoll 522
HydroMoll 522 er viðhalds- og varnarefni frá Arcan fyrir inndælingardælur. Eftir að dælan hefur verið hreinsuð er HydroMoll dælt í gegnum hana og látið standa í dælu og slöngum á meðan hún er geymd. Það heldur þéttingum, ventlum og slöngum mjúkum og kemur í veg fyrir að leifar af inndælingarefni harðni í dælunni.
Arcan mælir með því að nota HydroMoll 522 ásamt hreinsiefninu HydroSolv 520 til að dælan endist sem lengst. Fyrst er dælan skoluð með HydroSolv og síðan er HydroMoll dælt í gegn.
Hentar fyrir inndælingardælur fyrir pólýúretan, epoxý og akrýl.
| Umbúðir | 5kg |
|---|


