Þéttifroða – Arcan HydroFlex 622

48.400 kr.

Einsþátta PU-kvoða sem þenst út í teygjanlega, þétta froðu þegar hún kemst í snertingu við vatn. Notuð til að stöðva rennandi vatn og þétta byggingarhluta sem hreyfast.

  • Með HydroCat 514 flýti byrjar hún að hvarfast um 35 sekúndum eftir snertingu við vatn
  • Froðan helst teygjanleg og heldur lögun sinni
  • Fæst í 10 kg

Vefur framleiðanda

Þú gætir einnig þurft

Inndælingarnippill, standard Price range: 210 kr. through 590 kr.
Veldu
Inndælingarnippill með pönnuhaus Price range: 275 kr. through 590 kr.
Veldu
Varnarhúð við inndælingu – Arcan Trennfix 480 Price range: 18.750 kr. through 32.500 kr.
Veldu
Borholumúr eftir inndælingu – Arcan SealFix 930 Price range: 3.900 kr. through 24.980 kr.
Veldu

Hvað er HydroFlex 622?

HydroFlex 622 frá Arcan er þunnfljótandi, einsþátta pólýúretankvoða sem virkjast við vatn eða raka. Hún þenst út í fína, mjög teygjanlega þétta froðu. Þenslan þrýstir kvoðunni inn í fínar sprungur og holur og styður þéttinguna. Hún hentar sérstaklega í byggingarhluta sem hreyfast.

Notkun

  • Að stöðva rennandi vatn og virkan leka
  • Að loka steypuhreiðrum
  • Þétting í byggingarhlutum sem hreyfast

Arcan mælir með að fylgja froðu eftir með kvoðu til að fá varanlega þéttingu, til dæmis HydroBloc 575 Integral.

Vinnsla

  • Í flestum tilfellum er bætt við 1–4% af HydroCat 514 flýti til að fá hraða virkni og mikla þenslu. Magnið stjórnar hörðnunartíma og þenslu
  • Með flýti er efnið mjög viðkvæmt fyrir raka og búnaður þarf að vera þurr
  • Ekki nota alkóhól eða þynni til að hreinsa búnað, nota skal Arcan Hydrosolv 520

Tæknigögn

  • Seigja: um 650 mPa·s
  • Eðlisþyngd: um 1,12 g/ml
  • Með 4% flýti við 20 °C: byrjar að hvarfast eftir um 35 s, þenst út á 60–80 s og harðnar á um 120 s
  • Froðumagn: um 28-föld þensla við frjálsa froðumyndun

Tækniblað (enska)

Nánar um lekaþéttingu og val á efni á síðunni um lekaþéttingu.

Umbúðir

10kg

Tækniblað / Data Sheet- Enska / English

Sækja

TDS - English

Öryggisblað Arcan HydroFlex 622 (enska)

Sækja

Skoðaðu einnig þessa valkosti

Arcan HydroBloc 620 Integral inndælingarefni

Inndælingarefni, freyðandi – Arcan HydroBloc 620 Integral

Price range: 9.490 kr. through 35.995 kr. Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page
Arcan HydroBloc 575 Integral inndælingarefni

Inndælingarefni, varanlega vatnsbólgnandi – Arcan HydroBloc 575 Integral

Price range: 20.190 kr. through 39.950 kr. Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page
Arcan HydroFlex 622 þéttifroða
Þéttifroða – Arcan HydroFlex 622

48.400 kr.

Setja í körfu