Þéttimúr, stífur – Velosit WP 101

8.080 kr.

Sementsbundinn þéttimúr sem er kústaður, dreginn eða sprautaður á steypu og hlaðna veggi til að stöðva raka og vatn.

  • Þolir 13 bar vatnsþrýsting að framan og 5 bar að aftan
  • Um 2 mm lag í 1–2 umferðum
  • Slitsterkur, yfir 50 MPa
  • Gangfær eftir 3–4 klst., þolir vatnsþrýsting eftir sólarhring
  • 25 kg poki

Þú gætir einnig þurft

Velosit WP 101 þéttimúr

WP 101 er notaður í kjallara og bílakjallara, lyftugryfjur, vatnstanka og á veggi þar sem raki leitar upp. Vegna þess að hann þolir vatnsþrýsting að aftan (5 bar) má bera hann innan á vegg þegar ekki er hægt að komast að honum utan frá. Hann er líka notaður sem grunnlag undir aðra þéttingu.

Algengasta notkunin er leki í kjallara þar sem ekki er hægt að grafa frá og þétta utan frá. Þá er WP 101 borinn innan á vegginn og stendur gegn neikvæðum vatnsþrýstingi, það er vatni sem þrýstir á vegginn að aftan. Hann er samþykktur fyrir neysluvatn og hentar því líka í neysluvatnstanka og brunna. Múrinn er rýrnunarjafnaður.

WP 101 er stífur. Ef veggurinn hreyfist eða er sprunginn er WP 120 betri kostur, því hann er teygjanlegur og brúar sprungur. Ef vatn lekur inn um sprungur þarf fyrst að þétta þær með inndælingu, sjá lekaþéttingu.

WP 101 myndar þétt lag á yfirborðinu. Ef leitað er að kristallandi þéttingu, sem vinnur inni í steypunni og lokar allt að 0,4 mm sprungum, er CW 111 rétta efnið.

Þar sem vatnsþrýstingur er minni er hagkvæmari útgáfan WP 100 oft nóg.

Vinnsla

Hrærður með 17–20 % vatni (4,3–5,0 l í poka) og borinn á rakt undirlag. Kústaður í tveimur umferðum eða dreginn á í einni. Í heitu og þurru veðri er honum haldið rökum í allt að 4 klst. Gangfær eftir 3–4 klst. og þolir vatnsþrýsting eftir sólarhring.

Undirbúningur, grunnur og samanburður á öllum viðgerðarefnunum er á síðunni um steypuviðgerðir.

Tæknigögn

GerðSementsbundinn þéttimúr, rýrnunarjafnaður
Þrýstistyrkur12 MPa (4 klst.), 24 MPa (1 sólarhr.), 53 MPa (28 dagar)
Vatnsþrýstingur13 bar að framan, 5 bar að aftan (EN 12390-8)
LagþykktUm 2 mm
Efnisþörf1,6 kg/m² á hvern mm
Blöndun4,3–5,0 l vatns í 25 kg poka
Vinnslutími45–60 mín.
Vinnsluhiti5–35 °C
GangfærEftir 3–4 klst.
Þolir vatnsþrýstingEftir 1 sólarhring
FlokkunEN 1504-3, R3
NeysluvatnSamþykktur
Umbúðir25 kg poki
Þyngd25 kg
Litur

Ljósgrár, Dökkgrár

Tækniblað / Data Sheet- Enska /E nglish

Sækja

Tækniblað - Data Sheet

Öryggisblað

Sækja

Öryggisblað - Wp101

Tækniblað / Data Sheet - Íslenska

Sækja

Tækniblað - WP-101 - Íslenska

EPD - Wp-101

Sækja

EPD

Skoðaðu einnig þessa valkosti

Velosit WP 101 þéttimúr og fínmúr í 25 kg poka
Þéttimúr, stífur – Velosit WP 101

8.080 kr.

Setja í körfu This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page