-
Mánudaga - föstudaga 08:00 - 16:00
-
Staðsetning: Smiðjuvegur 5, 200 Kópavogur
-
Sími: 420 4010
Veggplötur með steypuáferð – Modee Raw Concrete
9.680 kr. / m²
Steinefnaplötur á veggi með mattri, hrárri steypuáferð. Plötur 1175 × 2800 mm, 4 mm þykkar, sem má leggja beint yfir gamlar flísar.
- Vatnsheldar, henta í baðherbergi og sturtur
- Smelltar saman og límdar, engin fúga
- Brunaflokkur B-s2,d0
- Einnig sem flísar 600 × 1200 mm í sérpöntun
- 11 áferðir, 3 á lager
- Verð á m², 3,29 m² á plötu
Þú gætir einnig þurft
Modee Raw Concrete
Steinefnaplötur á veggi með mattri, hrárri steypuáferð.
Modee eru steinefnaplötur frá pólska framleiðandanum Decora. Plöturnar eru 1175 × 2800 mm, aðeins 4 mm þykkar og um 8,5 kg/m², svo einn maður ræður við þær. Þær eru vatnsheldar og þola hreinsiefni, svo þær henta baðherbergjum og sturtum jafnt sem eldhúsum, göngum, svefnherbergjum og sjónvarpsveggjum, og líka hótelum og skrifstofum.
Plöturnar má leggja beint yfir gamlar flísar, svo ekki þarf að brjóta niður, rétta veggi eða þola rykið sem fylgir. Þær eru límdar á vegginn með Modee-lími og smelltar saman með Modee LOCK, tungu og gróp, en í köntunum er rauf fyrir sílikon svo samskeytin verða vatnsheld. Plöturnar er auðvelt að skera og kantar og horn eru kláruð með Modee-prófílum. Oft er hægt að klæða heilt baðherbergi á einum degi.
Áferðir
Á lager: Massi White – rákuð áferð, Massi Ivory – rákuð áferð, Massi Sand – rákuð áferð.
Sérpöntun: Massi White – matt steypuáferð, Massi Ivory – matt steypuáferð, Massi Grey – matt steypuáferð, Massi Grey – rákuð áferð, Massi Sand – matt steypuáferð, Nava Ivory – matt steypuáferð, Nava Grey – matt steypuáferð, Nava Sand – matt steypuáferð. Hafðu samband um afhendingartíma.
Flísar í sérpöntun: allar áferðirnar fást líka sem flísar, 600 × 1200 mm (4 í kassa, 2,88 m²), í sérpöntun. Flísarnar henta vel þar sem erfitt er að koma 2,8 m plötu inn í rýmið.
Myndirnar sýna allar áferðirnar. Litir geta virst aðrir á skjá en í raun.
Uppsetning
- Undirlag: fast, þurrt og hreint, t.d. gamlar flísar, pússning eða gipsplötur. Ójöfnur yfir 3 mm á 20 cm eða 5 mm á yfir 2 m eru jafnaðar fyrst.
- Aðstæður: 18–30 °C og 40–65 % rakastig í rýminu, og undirlagið að minnsta kosti 15 °C.
- Skurður: plötuna má rista með dúkahníf og brjóta, eða saga með hjólsög eða stingsög. Göt fyrir rör og innstungur eru gerð með gatasög.
- Lím: borið á í lóðréttum röndum með um 10 cm millibili, 1–2 cm frá brún, og plötunni þrýst á með gúmmíhamri.
- Þenslubil: 3 mm bil er skilið eftir við loft, í hornum og við gólf á baðherbergjum. Það er fyllt með sílikoni þegar límið hefur harðnað í að minnsta kosti 12 klst.
- Áferð: til að mynstrið haldist eins er öllum plötunum snúið eins. Ef plötu er snúið um 180° snýst mynstrið líka.
Í sturtum og á blautum svæðum
Framleiðandinn mælir með að veggir í sturtum og á öðrum blautum svæðum séu fyrst rakaþéttir með rakaþéttikvoðu í tveimur lögum, með þéttiborða í hornum og samskeytum veggja og gólfs, og að plöturnar séu síðan límdar með Modee-lími. Hjá okkur fást votrýmisgrunnur, Velosit DF 941 rakaþéttikvoða og þéttiborðar. Sjá votrými og baðherbergi, og hafðu samband ef þú vilt fara yfir kerfið.
Tæknigögn
| Framleiðandi | Decora (Pólland) |
| Efni | Steinefnaplata |
| Stærð | 1175 × 2800 mm, 3,29 m² á plötu |
| Þykkt | 4 mm |
| Þyngd | Um 8,5 kg/m², um 31 kg á plötu |
| Vatnsheldni | Stenst EN ISO 13553, engin þensla í vatni |
| Brunaflokkur | B-s2,d0 |
| Samskeyti | Modee LOCK, tunga og gróp, rauf fyrir sílikon |
| Útgufun | Stenst prófanir á formaldehýði, VCM og þungmálmum |
| Endurvinnsla | 100 % endurvinnanlegar |
Tækniblað Modee plötur (PDF, á ensku) · Uppsetningarleiðbeiningar (PDF)
| Áferð | Massi White – rákuð áferð, Massi Ivory – rákuð áferð, Massi Sand – rákuð áferð |
|---|---|
| Stærð | 1175 × 2800 mm (plata), 600 × 1200 mm (flísar, sérpöntun) |
| Þykkt | 4 mm |
| Magn á plötu | 3,29 m² |
| Brunaflokkur | B-s2,d0 |






























