Steinefnaplötur á veggi sem leggja má beint yfir gamlar flísar. Vatnsheldar, 4 mm þykkar og án fúgu, fyrir baðherbergi, eldhús og önnur rými.

Hvað eru Modee-plötur?

Modee eru steinefnaplötur á veggi frá pólska framleiðandanum Decora. Þær eru aðeins 4 mm þykkar og um 8,5 kg/m², svo einn maður ræður við heila plötu, en yfirborðið er hart og þolir hreinsiefni. Plöturnar eru vatnsheldar og í brunaflokki B-s2,d0.

Helsti kosturinn er að plöturnar má leggja beint yfir gamlar flísar, pússningu eða gipsplötur. Ekki þarf að brjóta niður gamla flísalögn, og þar sem plöturnar eru smelltar saman er engin fúga sem þarf að þrífa eða endurnýja. Þær henta baðherbergjum og sturtum, eldhúsum, göngum og sjónvarpsveggjum, og líka hótelum og skrifstofum.

Modee í rýmum

Línurnar fjórar

Áferðirnar skiptast í fjórar línur. Plötur í völdum áferðum eru til á lager, aðrar eru sérpantaðar.

Stone Essence

Steináferð: marmari, sandsteinn, kalksteinn og travertín, mattar, rákaðar eða í háglans. 17 áferðir, 4 á lager.

Raw Concrete

Hrá steypuáferð í hvítu, fílabeinslit, gráu og sandlit. 11 áferðir, 3 á lager.

Pure Structure

Einlitar plötur, mattar eða rákaðar, og Tweed með vefnaðarmynstri. 10 áferðir í sérpöntun.

True Wood

Eikaráferð, slétt eða með rimlum (Fluted). 6 áferðir í sérpöntun.

Stærðir og verð

PlataFlísar
Stærð1175 × 2800 mm600 × 1200 mm
Í einingu1 plata, 3,29 m²4 flísar í kassa, 2,88 m²
ÞyngdUm 31 kg á plötuUm 25,5 kg í kassa
AfgreiðslaValdar áferðir á lager, aðrar í sérpöntunSérpöntun
Verð9.680 kr./m² á lagerplötumEftir tilboði

Plötur ná frá gólfi upp í 2,8 m lofthæð án lárétts samskeytis. Flísarnar henta þar sem erfitt er að koma heilli plötu inn í rýmið.

Modee eða flísar?

Modee-plöturFlísar
Gamlar flísarPlöturnar fara beint yfir þærOftast brotnar niður
FúgaEngin, sílikon við loft, gólf og í hornumFúga á milli allra flísa
UppsetningLímdar og smelltar saman, oft á einum degiFlísalím og fúga þurfa að harðna
Þykkt4 mmFlís, lím og oft rakaþétting
ÞrifSlétt yfirborð án fúguFúgan safnar óhreinindum

Í sturtum og á öðrum blautum svæðum þarf samt að rakaþétta vegginn áður en plöturnar fara upp, eins og undir flísar. Sjá votrými og baðherbergi.

Svona eru plöturnar settar upp

Skýringarmynd Fagefnis: plöturnar límdar, smelltar saman og gengið frá með sílikoni og prófíl.
  1. Undirlagið þarf að vera fast, þurrt og hreint. Ójöfnur yfir 3 mm á 20 cm eru jafnaðar fyrst. Í rýminu á að vera 18–30 °C og undirlagið að minnsta kosti 15 °C.
  2. Lím er borið á vegginn í lóðréttum röndum með um 10 cm millibili, 1–2 cm frá brún plötunnar.
  3. Plötunni er þrýst á vegginn með höndunum eða gúmmíhamri og hún rétt af með hallamáli.
  4. Næsta plata er smellt á tunguna á þeirri fyrri (Modee LOCK). Öllum plötum er snúið eins svo mynstrið haldist.
  5. 3 mm bil er skilið eftir við loft, í hornum og við gólf á baðherbergjum. Það er fyllt með sílikoni þegar límið hefur harðnað í 12 klst.
  6. Prófílar eru límdir á kanta og horn.

Plöturnar eru ristar með dúkahníf og brotnar, eða sagaðar með hjólsög eða stingsög. Göt fyrir rör og innstungur eru gerð með gatasög. Uppsetningarleiðbeiningar Modee (PDF).

Prófílar og lím

Modee-prófílar

Álprófílar fyrir kanta, innhorn, úthorn og rúnnuð úthorn, 2,8 m. Titanium á lager, Silver og svart matt í sérpöntun. 4.890 kr.

Modee-lím

Fjölliðulím sem grípur strax, teygjanlegt og vatnshelt. 290 ml túpa, 2.490 kr.

Algengar spurningar

Má setja Modee-plötur í sturtu?

Já. Plöturnar eru vatnsheldar og samskeytin eru smellt saman og þétt með sílikoni. Framleiðandinn mælir þó með að veggir í sturtum séu fyrst rakaþéttir með rakaþéttikvoðu í tveimur lögum og þéttiborða í hornum, eins og undir flísar.

Má leggja plöturnar beint yfir gamlar flísar?

Já, ef gömlu flísarnar eru fastar og veggurinn sléttur. Ójöfnur yfir 3 mm á 20 cm eru jafnaðar fyrst. Best er að prófa límið á litlum fleti fyrst.

Má leggja þær á gipsplötur?

Já. Undirlagið þarf að vera fast og þurrt og má ekki gefa eftir. Í votrýmum er rakaþétt fyrst.

Hvernig eru plöturnar skornar?

Plöturnar eru ristar með dúkahníf og brotnar á sléttum fleti, eða sagaðar með hjólsög eða stingsög. Göt eru gerð með gatasög.

Hvað kostar Modee?

Plötur á lager kosta 9.680 kr./m², og ein plata er 3,29 m². Aðrar áferðir og flísar eru sérpantaðar og verðið fer eftir magni.

Hvernig eru plöturnar þrifnar?

Með venjulegum hreinsiefnum. Yfirborðið er slétt og þolir hreinsiefni fyrir baðherbergi, og þar sem engin fúga er safnast óhreinindi síður í samskeyti.

Viltu klæða vegg með Modee?

Sendu okkur mál og myndir af rýminu og við förum yfir áferðir, magn og það sem þarf með plötunum.

Vörur í þessari vörulínu