Votrýmisgrunnur – Alfix VådrumsPrimer

8.900 kr.

Fljótþornandi grunnur sem er borinn á áður en votrými eru rakaþétt. Bindur gleypið undirlag og ver rakaviðkvæmt undirlag, t.d. gipsplötur.

  • Á pússningu, hleðslu, steypu og gipsplötur
  • Samþykktur fyrir votrými
  • Bleikur, svo sést hvar hefur verið grunnað
  • 2,5 l brúsi
Vörunúmer: ALF-5402-2.5 Flokkar: , Lausn: Birgi:

Alfix VådrumsPrimer

VådrumsPrimer er grunnur úr fjölliðudreifu (dispersion) sem er borinn á undirlagið áður en baðherbergi og önnur votrými eru rakaþétt. Hann bindur gleypið undirlag og myndar rakavörn á rakaviðkvæmu undirlagi. Grunnurinn er bleikur, svo auðvelt er að sjá hvar hefur verið borið á, og hann þornar hratt.

Grunnurinn hentar á sementspússningu, hleðslu, steypu eldri en 28 daga, léttsteypu, frauðsteypu, ílagnir og gipsplötur, og á krossvið á gólfum.

Notkun

  • Gleypið undirlag, t.d. pússning, hleðsla og steypa: um 0,10 l/m²
  • Gipsplötur og trefjagipsplötur: um 0,20 l/m²
  • Gipspússning og krossviður: tvær umferðir, um 0,20 l/m²

Nánari upplýsingar eru í tækniblaði framleiðanda undir Vöruskjöl.

Tækniblað VådrumsPrimer (enska)

Sækja

EPD VådrumsPrimer

Sækja
Alfix VådrumsPrimer, grunnur fyrir rakaþéttingu í votrýmum
Votrýmisgrunnur – Alfix VådrumsPrimer

8.900 kr.

Setja í körfu