-
Mánudaga - föstudaga 08:00 - 16:00
-
Staðsetning: Smiðjuvegur 5, 200 Kópavogur
-
Sími: 420 4010
Akrýlþéttiefni – Arcan HydroBloc AC 555
48.400 kr.
Þunnfljótandi akrýlþéttiefni til inndælingar í sprungur og holrými í steypu. Efnið smýgur inn í fínustu sprungur, loðir vel við blautt undirlag og verður hart eins og epoxý þegar það hefur harðnað.
- Vinnslutími 70–80 mínútur við 20 °C
- Má nota í kulda, allt að −20 °C samkvæmt Arcan
- Tæki eru hreinsuð með vatni
- Fæst í 10 kg umbúðum
Þú gætir einnig þurft
Hvað er HydroBloc AC 555?
HydroBloc AC 555 frá þýska framleiðandanum Arcan er akrýlþéttiefni (úretanakrýlat) sem dælt er í sprungur, holrými og samskeyti í steypu. Samkvæmt Arcan sameinar það kosti akrýlefna og styrk epoxýkvoðu. Efnið er mjög þunnfljótandi (150–250 mPa·s) og blandast vatni áður en það harðnar, svo það bleytir rakt undirlag vel og smýgur inn í fínar sprungur og háræðar.
Notkun
- Að þétta og styrkja sprungur í steypu
- Að dæla undir lausar ílagnir og flísar
- Að þétta steypuhreiður og vinnuskil
- Snertiinndæling og styrking byggingarhluta
- Að binda fínan sand og jarðveg
- Sem viðgerðarmúr eða gólfgrautur, blandað sandi. Tekur sig líka við kaldar aðstæður
Akrýl, PU eða epoxý?
Í PU- og epoxýkvoðu byrjar efnið að þykkna um leið og þáttunum er blandað saman. Í HydroBloc AC 555 er herðirinn aðeins ræsir, svo efnið helst þunnt allan vinnslutímann og harðnar svo hratt í lokin. Hörðnunartímann má stilla með magni herðis.
Vinnsla
- Herðir fylgir, 4% af aðalþætti
- Dælt með einsþátta dælu
- Blandað 1:1 við vatn verður efnið að hörðu hlaupi sem bindur laust fúguefni eða sand
- Hlutir sem efnið snertir þurfa að vera úr ryðfríu stáli. Kopar og venjulegt verkfærastál henta ekki
- Geymist í minnst 12 mánuði í lokuðum umbúðum á köldum, þurrum og dimmum stað
Inndælingarnipplar og kúplingar fást líka hjá okkur í flokknum inndælingarnipplar og fylgihlutir.
| Umbúðir | 10kg |
|---|






