Velosit viðgerð á iðnaðargólfi
Á svæðum þar sem hæðir í gólfi er ábótavant og pollar myndast er mælt með eftirfarandi ef viðgerð er framkvæmd með Velosit SL 503 eða SL 507 Iðnaðarflotefni . Þykktarsvið á Velosit SL 503 3-38 mm
Þar sem lægðir mæta réttum hæðarkvóta í gólfi skal setja múrréttskeið og slípa niður með demantsbolla þannig að ca 4-5 mm rás myndist og auki styrk flotefnis á þeim svæðum.
Mælt er með að demantsslípa yfir allt svæðið með gólfslípivél eða slípirokk niður í ferska steypu til að ná sem bestri viðloðun.
Grunnið svæðið með Weber 4716 primer – gólfgrunni og látið þorna a.m.k í 4 klst.
Flotið yfir svæðið með Velosit SL 503 Iðnaðarflotefni C60
Fyrir Velosit SL 503 eða SL 507 iðnaðarflotefnin er mælt með PR 303 Epoxygrunni ásamt kvartssandi 0,7-1,2 mm fyrir mjög krefjandi aðstæður en einnig má nota hefðbundinn akrylgrunn fyrir gólf.
Að loknum viðgerðum er mælt með að allt gólfið sé meðhöndlað með hersluvökva / sealer sem herðir og styrkir og minnkar líkur á rykmyndun síðar.
Við mælum með Arcan Silibond 970 – Hagkvæmt efni sem gerir steypt gólf sterkari og minnka rykmyndun en mynda ekki filmu eða breyta ásýnd steypunnar.
Ef þörf er á öflugri vörn til að loka fyrir olíu og fl efnum er mælt með Arcan Powerseal 795 sem myndar meiri glans og slitsterkari himnu yfir gólfið.