Vantsþynnalegur Akryl grunnur fyrir flotefni , flísalím og múrblöndur. Einnig hentugur til að rykbinda gólf á verktíma .Þynnist með vatni , yfirleitt í hlutföllunum 1 hluti PA 911 Primer og 3 hlutar vatns en stundum blandaður minna eða jafnvel óblandaður t.d á timbur. Kústið eða rúllið ríkulega yfir svæðið þannig að undirlagið drekki vel í sig. Ef undirlagið er mjög rakadrægt eða opið er mælt með að grunna 2 umferðir.