Lýsing
Hydrobloc AC555 Acrylharz þéttiefni 10 kg. Þunnfljótandi og smýgur vel. Notast sem inndælingarefni til að styrkja sprungur í steypu en einnig til að dæla undir lausar ílagnir og flísar. Nær góðum styrk svipað og epoxy en er akryl efni með herði og hægt að þrífa af með vatni og sápu. Einnig hægt að nota sem öflugt viðgerðarefni eða graut í gólf sem tekur sig jafnvel við kaldar aðstæður.
Tækniblað : e-555-acrylate-injection-resin