Íþróttagólf fyrir keppnissali – Grabo Supreme, Extreme og Mega

Þykk íþróttagólf frá Grabo fyrir keppnissali og íþróttahús þar sem álagið á liði og bein er mest.

  • Supreme: 6,7 mm, flokkur P1
  • Extreme: 8 mm, flokkur P2, trefjaglerstyrkt
  • Mega: 10,3 mm, flokkur P3
  • Slitlag 1,4–1,7 mm, X-PUR yfirborð
  • 16 litir, 15 ára ábyrgð
  • Frí mæling og tilboð án skuldbindingar

Grabo Supreme, Extreme og Mega – íþróttagólf fyrir keppnissali

Þessi þrjú gólf eru gerð fyrir keppnissali, íþróttahús og íþróttasali skóla þar sem mikið er hoppað og hlaupið, til dæmis í handbolta, körfubolta, blaki, fimleikum og bardagaíþróttum. Þau uppfylla staðalinn EN 14904 fyrir íþróttagólf innanhúss og eru í mismunandi flokkum eftir því hve mikið þau taka við höggi.

Supreme er 6,7 mm þykkt og í flokki P1. Það hentar íþróttasölum þar sem iðkendur eru vel á sig komnir og stunda margar greinar. Extreme er 8 mm þykkt, styrkt með trefjagleri og í flokki P2, með yfir 35 % höggdeyfingu. Mega er 10,3 mm þykkt og í flokki P3, með yfir 45 % höggdeyfingu. Það nær þeim flokki án sérstaks undirlags, því bakið er úr þreföldu lagi af þéttri froðu. Því hærri sem flokkurinn er, því meira hlífir gólfið liðum, sem skiptir máli fyrir börn og þá sem æfa daglega.

Öll þrjú eru með 1,4–1,7 mm slitlagi og X-PUR yfirborði sem er auðvelt að þrífa. Þau koma á 2 m breiðum rúllum, eru límd niður og samskeytin soðin. Grabo veitir 15 ára ábyrgð.

Litir

Gólfin fást öll í sömu 16 litunum. Í myndasafninu eru nokkrir þeirra og við sýnum allt litaúrvalið þegar við komum að mæla.

Tæknigögn

SupremeExtremeMega
Flokkur (EN 14904)P1P2P3
Heildarþykkt6,7 mm8 mm10,3 mm
Slitlag1,4 mm1,7 mm1,7 mm
Þyngd3,6 kg/m²4,3 kg/m²5,2 kg/m²
Rúlla2 m × 20 m2 m × 15 m2 m × 15 m
Boltaskopp≥ 90 %≥ 90 %≥ 90 %
Lóðrétt aflögun≤ 2 mm≤ 2 mm≤ 2 mm
BrunaflokkurCfl-s1Cfl-s1Cfl-s1
Ábyrgð15 ár15 ár15 ár

Tækniblað Grabo Supreme (PDF, á ensku)

Tækniblað Grabo Extreme (PDF, á ensku)

Tækniblað Grabo Mega (PDF, á ensku)

Frí mæling og tilboð. Við komum, mælum salinn án endurgjalds og sendum tilboð án skuldbindingar í gólfefni og lögn, með afrifi og frágangi. Hafðu samband eða hringdu í 420 4010.

Litir

2089, 5016, 7539, 1596, 6470, 7143, 2000-378, 2209-371

Skoðaðu einnig þessa valkosti