-
Mánudaga - föstudaga 08:00 - 16:00
-
Staðsetning: Smiðjuvegur 5, 200 Kópavogur
-
Sími: 420 4010
Vínyllím – Alfix ElastaCol 020
18.990 kr.
Leysiefnalaust lím til að líma PVC- og vínylgólfefni, gúmmígólfefni og kork með PVC-bakhlið. Límið hefur langan opinn tíma og mikinn lokastyrk.
- Fyrir vínyldúka, vínylflísar, gúmmí og pólýólefín
- Opinn tími um 60 mínútur
- Þolir stóla á hjólum, lítil útgufun (EMICODE EC1)
- 12 kg fata
Þú gætir einnig þurft
Alfix ElastaCol 020 vínyllím
ElastaCol 020 er ljóst, þunnfljótandi lím úr fjölliðudreifu (dispersion) án leysiefna. Það er notað til að líma PVC- og vínylgólfefni, pólýólefín, gúmmígólfefni og kork með PVC-bakhlið. Límið dreifist auðveldlega, drjúgt og þolir álag frá stólum á hjólum.
Undirlag
Sementsbundið undirgólf má vera með mest 85 % RF og samloðunarstyrkur þarf að vera minnst 1 N/mm². Límið hentar einnig á harðar trétrefjaplötur, spónaplötur og krossvið. Undirlagið þarf að vera burðarhæft og laust við ryk og fitu. Steypt undirgólf er flotað, minnst 2 mm, t.d. með ElastaCem 506, og flotið slípað og ryksogið áður en límt er.
Vinnsla
Límið er borið á með tenntum spaða. Eftir 10–20 mínútna loftunartíma er gólfefnið lagt í blautt límið og þrýst vel niður svo ekki myndist loftbólur. Límið á að smita vel á bakhlið gólfefnisins. Gólfefnið er valtað vandlega og aftur um 30 mínútum síðar. Berið ekki meira lím á en hægt er að leggja, skera og valta innan um 60 mínútna.
Hiti í rými þarf að vera minnst 18 °C, hiti undirlags minnst 15 °C og rakastig 40–80 %. Gólfhiti er slökktur minnst sólarhring fyrir lögn og kveiktur í fyrsta lagi 48 klst. eftir hana. Hitinn er síðan hækkaður um mest 5 °C á sólarhring.
Tæknigögn
- Notkun: 225–275 g/m² með spaða A1
- Loftunartími: 10–20 mínútur
- Opinn tími: um 60 mínútur
- Þornunartími: um 1 sólarhringur. Þolir létt álag strax eftir lögn
- Geymsla: minnst 12 mánuðir í óopnuðum umbúðum, má ekki frjósa
Ferskt lím er þrifið af verkfærum með vatni.
Nánari upplýsingar eru í tækniblaði framleiðanda undir Vöruskjöl.
| Þyngd | 12 kg |
|---|


