Íþróttagólf fyrir íþróttasali – Grabo Elite

Alhliða íþróttagólf fyrir íþróttasali skóla, boltaíþróttir, fimleika, bardagaíþróttir og dans.

  • Flokkur P1 samkvæmt EN 14904
  • 6 mm þykkt, slitlag 1,2 mm
  • X-PUR yfirborð, þarf ekki bón
  • Rúlla 2 m á breidd
  • 15 ára ábyrgð
  • Frí mæling og tilboð án skuldbindingar

Grabo Elite – íþróttagólf fyrir íþróttasali

Elite er alhliða íþróttagólf frá Grabo fyrir íþróttasali þar sem stundaðar eru margar greinar, til dæmis íþróttasali skóla þar sem leikfimi, boltaíþróttir og fimleikar fara fram í sama sal. Það hentar líka bardagaíþróttum, skylmingum, dansi og íþróttasölum hótela.

Gólfið uppfyllir staðalinn EN 14904 fyrir íþróttagólf innanhúss í flokki P1. Froðubakið tekur við höggi og hlífir liðum, og yfirborðið veitir hæfilegt grip svo hægt er að skipta snöggt um stefnu. Boltar skoppa að minnsta kosti 90 % miðað við steypt gólf. Gólfið er með vottun frá FIBA, alþjóðakörfuknattleikssambandinu.

Gólfið er 6 mm þykkt með 1,2 mm slitlagi og X-PUR yfirborði sem er auðvelt að þrífa og þarf ekki bón. Það kemur á 2 m breiðum rúllum, er límt niður og samskeytin soðin. Grabo veitir 15 ára ábyrgð.

Litir

Elite fæst í 7 litum, sem allir eru í myndasafninu. Vallarlínur eru málaðar á gólfið eftir lögn.

Tæknigögn

FramleiðandiGrabo (Ungverjaland)
StaðallEN 14904, flokkur P1
Heildarþykkt6 mm
Slitlag1,2 mm
Þyngd3,2 kg/m²
Rúlla2 m × 20 m
Lóðrétt aflögun (EN 14809)≤ 2 mm
Boltaskopp (EN 12235)≥ 90 %
Núningur (EN 13036-4)80–110
Rúlluálag (EN 1569)1.500 N, engar skemmdir
Varanleg dæld (EN 1516)≤ 0,5 mm
BrunaflokkurCfl-s1
YfirborðX-PUR
Ábyrgð15 ár

Tækniblað Grabo Elite (PDF, á ensku)

Frí mæling og tilboð. Við komum, mælum salinn án endurgjalds og sendum tilboð án skuldbindingar í gólfefni og lögn, með afrifi og frágangi. Hafðu samband eða hringdu í 420 4010.

Litir

1360, 3096, 6170, 7483, 3338, 5016, 2519-371

Skoðaðu einnig þessa valkosti