Íþróttagólf fyrir æfingasali – Grabo Gymfit 60

Slitsterkt íþróttagólf á rúllum fyrir líkamsræktarsali, æfingasali skóla, dans, þolfimi og æfingarými heima.

  • 6 mm þykkt, slitlag 0,85 mm
  • Tvöfalt froðubak sem mýkir undir fæti
  • X-PUR yfirborð, þarf ekki bón
  • Rúlla 2 m á breidd
  • 6 litir
  • Frí mæling og tilboð án skuldbindingar

Grabo Gymfit 60 – íþróttagólf til æfinga

Gymfit 60 er marglaga vínylgólf frá ungverska framleiðandanum Grabo fyrir æfingar, leikfimi og almenna hreyfingu. Það hentar líkamsræktarsölum, æfingasölum skóla, dans- og þolfimisölum og æfingarými á heimilum. Gólfið er 6 mm þykkt með 0,85 mm slitlagi og tvöföldu froðubaki sem gerir það mýkra undir fæti en venjulegan dúk.

Yfirborðið er meðhöndlað með X-PUR og GraboSan. Það er auðvelt að þrífa og þarf ekki bón. Gólfið þolir 1.500 N rúlluálag án skemmda, boltar skoppa yfir 90 % á því og það er án leysiefna og 100 % endurvinnanlegt. Grabo veitir 7 ára ábyrgð.

Höggdeyfingin er 18 %, sem hentar til æfinga og almennrar hreyfingar. Í íþróttasali þar sem keppt er eða mikið hoppað mælum við frekar með Grabo Elite eða þykkari gólfunum.

Gólfið kemur á 2 m breiðum rúllum, er límt niður og samskeytin soðin, svo það verður samfellt og auðvelt að þrífa það.

Litir

Gymfit 60 fæst í 6 litum, sem allir eru í myndasafninu.

Tæknigögn

FramleiðandiGrabo (Ungverjaland)
Heildarþykkt6,0 mm
Slitlag0,85 mm
Þyngd3,3 kg/m²
Rúlla2 m × 20 m
Höggdeyfing (EN 14808)18 %
Lóðrétt aflögun (EN 14809)≤ 2 mm
Boltaskopp (EN 12235)> 90 %
Núningur (EN 13036-4)80–110
Rúlluálag (EN 1569)1.500 N, engar skemmdir
Varanleg dæld (EN 1516)≤ 0,5 mm
BrunaflokkurCfl-s1
YfirborðX-PUR, GraboSan
Ábyrgð7 ár

Tækniblað Grabo Gymfit 60 (PDF, á ensku)

Frí mæling og tilboð. Við komum, mælum salinn án endurgjalds og sendum tilboð án skuldbindingar í gólfefni og lögn, með afrifi og frágangi. Hafðu samband eða hringdu í 420 4010.

Litir

1360, 3338, 5016, 6215, 7338, 2519-371

Skoðaðu einnig þessa valkosti