Vínyldúkur, slitsterkur – Grabo Diamond

Þéttur og slitsterkur vínyldúkur frá Grabo fyrir skóla, heilbrigðisstofnanir, hjúkrunarheimili og skrifstofur.

  • Rúlla 2 m á breidd
  • Slitlag 0,7 mm, slitflokkur 34/43
  • Sjálfsótthreinsandi yfirborð (X-PUR Silver Knight)
  • Hálkuvörn R10
  • 33 litir
  • Frí mæling og tilboð án skuldbindingar
Flokkar: , Lausn: Birgi:

Grabo Diamond – vínyldúkur fyrir stofnanir

Diamond er þéttur, marglaga vínyldúkur (heterogeneous) frá ungverska framleiðandanum Grabo, sem hefur framleitt gólfefni frá 1905. Dúkurinn er 2 mm þykkur með 0,7 mm glæru slitlagi og er í slitflokki 34 fyrir atvinnuhúsnæði og 43 fyrir iðnað. Hann hentar þar sem álagið er mikið og gólfið þarf að vera hreinlegt, til dæmis í skólum, leikskólum, á heilbrigðisstofnunum, hjúkrunarheimilum, skrifstofum og í mötuneytum.

Yfirborðið er meðhöndlað með X-PUR Silver Knight. Það er matt, auðvelt að þrífa og þolir hreinsiefni, og samkvæmt prófun eftir ISO 22196 drepur það yfir 99 % af bakteríum á yfirborðinu. Dúkurinn þarf ekki bón. Hann markar varla undan þungum hlutum og hjólum, því varanleg dæld mælist 0,01 mm.

Dúkurinn er límdur niður og samskeytin soðin með suðuþræði, heitt eða kalt, svo gólfið verður samfellt og vatnshelt. Hann er án þalata, leysiefna og þungmálma og Grabo veitir 10 ára ábyrgð.

Litir

Diamond fæst í 33 litum, allt frá ljósgráum og drapplituðum yfir í sterka liti. Í myndasafninu eru nokkrir þeirra. Við sýnum allt litaúrvalið þegar við komum að mæla.

Tæknigögn

FramleiðandiGrabo (Ungverjaland)
GerðÞéttur, marglaga vínyldúkur (heterogeneous)
Heildarþykkt2,0 mm
Slitlag0,7 mm
Þyngd2,8 kg/m²
Rúlla2 m × 20 m
Slitflokkur (EN 685)34 / 43
Slitþol (EN 660-1)Flokkur T
BrunaflokkurBfl-s1
HálkuvörnR10 (DIN 51130)
Varanleg dæld0,01 mm (hámark 0,1 mm)
YfirborðX-PUR Silver Knight, bakteríudrepandi >99 % (ISO 22196)
SamskeytiSoðin, heitt eða kalt
Ábyrgð10 ár

Frí mæling og tilboð. Við komum, mælum rýmið án endurgjalds og sendum tilboð án skuldbindingar í dúk og lögn, með afrifi og frágangi. Hafðu samband eða hringdu í 420 4010.

Tækniblað Grabo Diamond (PDF, á ensku)

Litir

391-673-275, 391-653-275, 393-652-281, 1146-393-668-281, 1151-371-869-281, 1343, 3319, 6110, 7235

Skoðaðu einnig þessa valkosti