Vínyldúkur, hljóðdempandi – Grabo Acoustic

Vínyldúkur með mjúku undirlagi sem dregur úr högghljóði, fyrir skóla, leikskóla, bókasöfn, hjúkrunarheimili og skrifstofur.

  • Dregur úr högghljóði um 19 dB
  • Þykkt 3,2 mm, mjúkur undir fæti
  • Acoustic 43: slitlag 0,7 mm, 45 litir
  • Acoustic PRO: slitlag 0,55 mm, 11 litir
  • Hentar á gólfhita
  • Frí mæling og tilboð án skuldbindingar
Flokkar: , Lausn: Birgi:

Grabo Acoustic – hljóðdempandi vínyldúkur

Acoustic er marglaga vínyldúkur frá Grabo með froðubaki sem dregur úr högghljóði um 19 dB. Hann hentar þar sem fótatak og glamur trufla, til dæmis í skólum, leikskólum, bókasöfnum, á hjúkrunarheimilum, heilbrigðisstofnunum og skrifstofum. Bakið gerir dúkinn líka mýkri undir fæti en venjulegan dúk.

Línan skiptist í tvær gerðir. Acoustic 43 er með 0,7 mm slitlagi og X-PUR Silver Knight yfirborði sem er matt, sjálfsótthreinsandi og þolir mikið álag (slitflokkur 34/42, hálkuvörn R10). Hann fæst í 45 litum. Acoustic PRO er hagkvæmari, með 0,55 mm slitlagi og PUR-yfirborði með graboSAN-vörn gegn bakteríum og myglu (slitflokkur 33/42, hálkuvörn R9). Hann fæst í 11 litum og í 2 eða 4 m breiðum rúllum.

Báðar gerðir eru 3,2 mm þykkar, í brunaflokki Bfl-s1 og án þalata, leysiefna og þungmálma. Dúkurinn er límdur niður og samskeytin soðin. Hann hentar á gólfhita og þarf ekki bón.

Litir

Í myndasafninu eru nokkrir af litunum. Við sýnum allt litaúrvalið þegar við komum að mæla.

Tæknigögn

Acoustic 43Acoustic PRO
Heildarþykkt3,2 mm3,2 mm
Slitlag0,7 mm0,55 mm
Þyngd2,7 kg/m²2,7 kg/m²
Rúllubreidd2 m2 eða 4 m
Slitflokkur (EN 685)34 / 4233 / 42
Högghljóðdeyfing19 dB19 dB
BrunaflokkurBfl-s1Bfl-s1
HálkuvörnR10R9
YfirborðX-PUR Silver KnightPUR, graboSAN
Litir4511

Frí mæling og tilboð. Við komum, mælum rýmið án endurgjalds og sendum tilboð án skuldbindingar í dúk og lögn, með afrifi og frágangi. Hafðu samband eða hringdu í 420 4010.

Tækniblað Grabo Acoustic 43 (PDF, á ensku)

Tækniblað Grabo Acoustic PRO (PDF, á ensku)

Litir

Acoustic PRO 4313-467-4, Acoustic PRO 4313-460-4, Acoustic PRO 4313-458-4, Acoustic PRO 4313-474-4, Acoustic PRO 4259-501-5, Acoustic PRO 4259-503-5, Acoustic PRO 4259-504-5

Skoðaðu einnig þessa valkosti