-
Mánudaga - föstudaga 08:00 - 16:00
-
Staðsetning: Smiðjuvegur 5, 200 Kópavogur
-
Sími: 420 4010
Íblöndunarefni, latex – Velosit LE 910
15.980 kr.
Sementsþolin latex-blanda sem er hrærð út í múr, steypu og flísalím. Hún eykur viðloðun, teygju og vatnsheldni og dregur úr rýrnun. LE 910 er líka notað þynnt sem grunnur og í viðloðunarlag.
- Í múr: 1:2 með vatni eða óblandað
- Sem grunnur: allt að 1:5 með vatni
- Hvítt og án leysiefna
- 10 kg brúsi
Velosit LE 910
LE 910 er þykkni sem er blandað í blönduvatnið. Hlutfallið ræður eiginleikunum: því minna sem það er þynnt, því meiri verður viðloðunin og teygjan. Múr með LE 910 dregur minna í sig af vatni og ver betur gegn salti.
Notkun og blöndunarhlutföll
Grunnur. Þynnt allt að 1:5 með vatni og borið á með pensli eða rúllu á steypu, múr og gifs. Bindur laus og gljúp yfirborð.
Viðloðunarlag. Þynnt 1:2 með vatni og hrært saman við sement og sand (1:1 til 1:3), 2–4 kg/m². Viðgerðarmúrinn er lagður blautt í blautt.
Grófhúð. Þynnt 1:2 og blandað með sandi, mest 4 mm. Kastað á flötinn svo hann þekist um það bil til hálfs.
Íblöndun í múr. Frá 1:2 upp í óblandað. Við 1:2 eykst styrkurinn.
Flísalím. 1:4 í blönduvatnið gefur flokk S1 og 1:1 flokk S2.
Vinnsla
Undirlagið þarf að vera 5–35 °C. Grunnurinn þornar á 2–3 klukkustundum við 23 °C. LE 910 geymist í 24 mánuði í lokuðum umbúðum við 5–25 °C og má ekki frjósa.
Til að binda viðgerðarmúr við steypu er einnig til tilbúinn sementsgrunnur, Velosit CP 201. Fleiri grunnar eru í flokknum grunnar og íblöndunarefni.
| Umbúðir | 10 kg |
|---|


