PMMA-spartl fyrir kantprófíla og niðurföll – Triflex Cryl Spachtel

Price range: 49.000 kr. through 129.900 kr.

Tvíþátta PMMA-spartl frá Triflex til að jafna ójöfnur í undirlagi, til dæmis að niðurföllum og kantprófílum, og fylla í skaranir á flísdúk og dældir áður en slitlag og lokaumferð eru lögð.

  • Harðnar með Triflex Catalyst
  • Gangfært og yfirmálanlegt eftir um 1 klst. við 20 °C
  • Um 1,4 kg/m² á hvern mm
  • 5 og 15 kg fötur, grátt (RAL 7032)

Þú gætir einnig þurft

Herðir fyrir PMMA-efni – Triflex Catalyst Price range: 1.790 kr. through 56.700 kr.
Veldu
Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , Lausn: Birgi:

Triflex Cryl Spachtel

Cryl Spachtel er tvíþátta, litað spartl úr PMMA-kvoðu, leysiefnalaust og fljótharðnandi. Það er notað til að jafna ójöfnur í undirlaginu, til dæmis að niðurföllum og kantprófílum, og til að fylla í skaranir á flísdúknum og dældir í Triflex-kerfum, svo yfirborðið verði slétt áður en slitlag og lokaumferð eru lögð. Það hentar líka í viðgerðir.

Vinnsla

Undirlagið þarf að vera burðarhæft, þurrt og laust við laus efni og annað sem dregur úr viðloðun. Viðloðun er prófuð á staðnum og útiloka þarf raka sem kemur að neðan. Hiti undirlags og lofts á að vera 0–35 °C og yfirborðið minnst 3 °C yfir daggarmarki. Í lokuðum rýmum þarf öfluga loftræstingu.

Spartlið er hrært vel, herðinum blandað út í á hægum snúningi án kekkja og hrært í minnst 2 mínútur. Síðan er efninu hellt í annað ílát og hrært aftur. Vinnslutími er um 10 mínútur við 20 °C, svo aðeins er blandað því sem nær að vinnast.

HitiHerðir á 15 kg spartls
0–25 °C0,90 kg (6 %)
25–35 °C0,60 kg (4 %)

Tæknigögn

GerðTvíþátta PMMA-spartl, leysiefnalaust
EfnisþörfUm 1,40 kg/m² á hvern mm á sléttum fleti
VinnslutímiUm 10 mín. við 20 °C
RegnþoliðEftir um 30 mín. við 20 °C
Gangfært og yfirmálanlegtEftir um 1 klst. við 20 °C
Vinnsluhiti0–35 °C, minnst 3 °C yfir daggarmarki
LiturGrár, RAL 7032
GeymslaUm 6 mánuðir óopnað á köldum, þurrum og frostlausum stað, ekki í beinu sólarljósi

Meira um kerfin á síðunni um Triflex svalaþéttingu.

Umbúðir

15 kg, 5 kg

Triflex Cryl Spachtel – spartl
PMMA-spartl fyrir kantprófíla og niðurföll – Triflex Cryl Spachtel

Price range: 49.000 kr. through 129.900 kr.

Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page