-
Mánudaga - föstudaga 08:00 - 16:00
-
Staðsetning: Smiðjuvegur 5, 200 Kópavogur
-
Sími: 420 4010
Purline 1500 – einlitur PUR-dúkur
9.350 kr.
Einlitur dúkur úr Purline 1500, PUR-gólfefni frá Wineo. Dúkurinn er 2 m breiður og samskeytin eru soðin, svo hann hentar stórum, samfelldum flötum eins og skólagöngum, anddyrum og matsölum.
- 24 litir, frá hvítu og gráu yfir í sterka liti
- 2,5 mm, notkunarflokkur 34 og 43
- Þarf ekkert bón eða yfirborðsmeðferð
- Oftast sérpantað, afhending yfirleitt 4–6 vikur
Þú gætir einnig þurft
Einlitur Purline dúkur
Litirnir 24 spanna allt frá hvítu og gráu yfir í sterka liti eins og Cherry Red og Royal Blue. Hægt er að nota fleiri en einn lit í sama gólfi, t.d. til að afmarka svæði eða gönguleiðir, og þá eru samskeytin milli lita soðin eins og önnur samskeyti.
Lögn
Dúkurinn er límdur yfir allan flötinn á slétt, þurrt og hreint undirlag og samskeytin soðin með suðuþræði frá Wineo. Wineo mælir með flotlagi til að jafna gólfið og á þétt eða rakavarið undirlag þarf minnst 3 mm lag. Við seljum flotefni og grunn í undirlagið. Á gólfhita má yfirborðshiti vera allt að 27 °C.
Magn
Hver rúlla er 2 × 20 m, eða 40 m². Sendu okkur mál eða teikningu og við reiknum út hve margar rúllur þarf.
Sama efni fæst líka sem dúkur með viðarmynstri og plankar. Tæknigögn, vottanir og algengar spurningar eru á síðunni um Purline.
| Litur | Pure White, Light Grey, Silver Grey, Steel Grey, Melange, Cotton Beige, Almond Beige, Wheat Brown, Chocolate Brown, Rust Brown, Powder Rose, Cherry Red, Tropical Orange, Springtime Orange, Honey Mustard, Sunshine Yellow, Apple Green, Aloe Green, Jade Green, Summer Sky, Fountain Blue, Ocean Blue, Royal Blue, Navi Blue |
|---|---|
| Stærð rúllu | 2 × 20 m (40 m²) |
| Þykkt | 2,5 mm |
| Lagning | Límt yfir allan flötinn, samskeyti soðin |
| Notkunarflokkur | 23 / 34 / 43 (EN ISO 10874) |
| Hentar á gólfhita | Hentar, hámark 27°C í yfirborðshitastigi |
| Brunaflokkur | Cfl-s1 (EN 13501-1) |
| Hálkuvörn | R9 (DIN 51130) |
| Hljóðdempun | ~8 dB (EN ISO 10140) |
| Varanleg dæld | ~0,05 mm (EN ISO 24343-1) |
| Vottanir | Blauer Engel, Cradle to Cradle, GREENGUARD Gold, M1, A+ |







