-
Mánudaga - föstudaga 08:00 - 16:00
-
Staðsetning: Smiðjuvegur 5, 200 Kópavogur
-
Sími: 420 4010
Þéttifroða, hraðvirk – Arcan HydroBloc 510
34.500 kr.
Einsþátta pólýúretanfroða sem stöðvar hratt rennandi vatn og leka í steypu, múr og bergi. Hún hvarfast hratt, þenst mikið út og fyllir holrými.
- Hvarfast hratt og harðnar fljótt
- Þunn og smýgur vel, þenst mikið út
- Hvarftíma má stilla með HydroCat 514
- Dælt með einsþátta dælu eða handdælu
- 10 kg
Þú gætir einnig þurft
Arcan HydroBloc 510 – þéttifroða sem stöðvar leka
HydroBloc 510 er einsþátta pólýúretanfroða frá Arcan til að stöðva rennandi vatn og leka í steypu, múr og bergi. Hún er þunn og smýgur vel inn í sprungur og holrými, og þegar hún kemst í snertingu við vatn hvarfast hún hratt og þenst mikið út í fínholótta froðu sem lokar fyrir vatnið. Hún nýtist líka til að fylla holrými og festa jarðveg og berg, til dæmis í jarðgöngum og námum.
Hvarftímann má stilla með flýtinum HydroCat 514, sem blandað er í froðuna í hlutfallinu 1–4 %. Froðan stöðvar lekann en til að fá varanlega þéttingu er síðan dælt teygjanlegu inndælingarefni í sprunguna, til dæmis HydroBloc 575 eða HydroFlex 622.
Notkun
Froðunni er dælt með einsþátta inndælingardælu eða handdælu í gegnum inndælingarnippla. Dæla og áhöld eru skoluð með HydroSolv 520 strax eftir notkun.
| Umbúðir | 10kg |
|---|





