Snertilím, vatnsbundið – Alfix ElastaCol 040

15.645 kr.

Vatnsbundið snertilím án leysiefna fyrir PVC-lista og -þiljur, línóleum-kverkalista, textílslitlag á stiga og kork- og gúmmígólfefni.

  • Grípur strax þegar fletirnir mætast
  • Opinn tími 1–2 klst., má endurvirkja með hita
  • Mikill lokastyrkur
  • 3 kg fata
Vörunúmer: ALF-6661 Flokkur: Birgi:

Alfix ElastaCol 040 snertilím

ElastaCol 040 er vatnsbundið snertilím úr fjölliðudreifu (dispersion), án leysiefna. Það er notað til að líma PVC-lista og -þiljur, kverkalista úr línóleum, textílslitlag á stigaþrep og kork- og gúmmígólfefni. Límið grípur um leið og fletirnir mætast og hefur mikinn lokastyrk. Það má endurvirkja með hita.

Undirlag

Sementsbundið undirlag má vera með mest 85 % RF og samloðunarstyrkur þarf að vera minnst 1 N/mm². Límið hentar einnig á harðar trétrefjaplötur, spónaplötur og krossvið. Undirlagið þarf að vera burðarhæft og laust við ryk og fitu.

Vinnsla

Límið er borið á báða fletina, undirlagið og efnið sem á að líma, með tenntum spaða B1 og síðan valtað þar til áferðin er jöfn. Límið er látið þorna þar til það verður gegnsætt. Þá er efnið lagt á og þrýst vel niður. Hiti í rými þarf að vera minnst 18 °C.

Tæknigögn

  • Notkun: um 250 g/m² á hvorn flöt með spaða B1
  • Opinn tími: 1–2 klst.
  • Þornunartími: um 1 sólarhringur. Þolir létt álag strax eftir lögn
  • Geymsla: minnst 12 mánuðir í óopnuðum umbúðum, má ekki frjósa

Ferskt lím er þrifið af verkfærum með vatni.

Nánari upplýsingar eru í tækniblaði framleiðanda undir Vöruskjöl.

Þyngd3 kg

Tækniblað ElastaCol 040 (danska)

Sækja

Öryggisblað Alfix ElastaCol-lím og grunna (danska)

Sækja
Alfix ElastaCol 040, snertilím, vatnsbundið, 3 kg
Snertilím, vatnsbundið – Alfix ElastaCol 040

15.645 kr.

Setja í körfu