Rakagrunnur undir flot, einsþátta – Alfix Fugtspærre

42.900 kr.

Litlaus rakavörn sem ver flot og gólfefni gegn byggingarraka í sementsbundnu undirlagi. Þornar hratt og er borin á í tveimur umferðum.

  • Á steypu, léttsteypu og ílagnir
  • Steypa eftir 1 mánuð, ílögn eftir 2 sólarhringa, mest 95 % RF
  • Þornar á um 1 klst. á milli umferða
  • 10 l fata, innanhúss
Vörunúmer: ALF-5420 Flokkar: , Lausn: Birgi:

Alfix Fugtspærre

Fugtspærre er litlaus vatnsdreifð rakavörn sem ver flot og gólfefni gegn byggingarraka í sementsbundnu undirlagi. Hún gerir kleift að halda áfram fyrr: á steypu sem er orðin eins mánaðar gömul og á ílögn eftir 2 sólarhringa, þegar raki er mest 95 % RF. Hún hentar á steypu, léttsteypu og ílagnir innanhúss.

Vinnsla

Undirlagið þarf að vera burðarhæft, hreint og laust við sementsskán, útfellingar og sprungur í gegn. Fugtspærre er hrist eða hrærð og borin á með breiðum pensli eða rúllu í tveimur umferðum: fyrst þynnt með vatni 1:3 og síðan óþynnt, þvert á fyrri umferð. Hvor umferð þornar á um klukkustund við 20 °C. Notkun er alls 0,20–0,25 l/m².

Þegar rakavörnin hefur þornað má grunna með UniversalPrimer eða flota beint, t.d. með ElastaCem 501.

Nánari upplýsingar eru í tækniblaði framleiðanda undir Vöruskjöl.

Þyngd10 kg

Tækniblað Fugtspærre (danska)

Sækja
Alfix Fugtspærre, rakavörn undir flot, 10 l
Rakagrunnur undir flot, einsþátta – Alfix Fugtspærre

42.900 kr.

Setja í körfu