-
Mánudaga - föstudaga 08:00 - 16:00
-
Staðsetning: Smiðjuvegur 5, 200 Kópavogur
-
Sími: 420 4010
Malbiksviðgerð – Triflex Asphalt Repro 3K
Price range: 8.690 kr. through 25.990 kr.
Þriggja þátta PMMA-viðgerðarefni fyrir holur, hjólför og aðrar skemmdir í malbiki, og kringum brunna og kantsteina. Ekki þarf að saga upp malbikið eða þjappa, og aka má yfir viðgerðina eftir um klukkustund.
- Repro R kvoða + Repro S duft + Catalyst herðir
- Um 2 kg/m² á hvern mm
- Vinnsluhiti 0 til +35 °C
- Brúar sprungur upp að 0,8 mm
Þú gætir einnig þurft
Triflex Asphalt Repro 3K
Asphalt Repro 3K er hraðharðnandi viðgerðarmúr úr PMMA og steinefnum. Hann er notaður til að fylla holur, laga hjólför og skemmda kanta og endurmóta yfirborð á götum, plönum og bílastæðum. Efnið er án leysiefna, slitsterkt og hefur verið prófað fyrir hjólfaramyndun.
Blöndun
Kvoðan (Repro R) og duftið (Repro S) eru blönduð í tveimur hlutföllum:
1:3, fljótandi. 4 kg kvoða og 12 kg duft, til að jafna og húða.
1:6, þykkt. 4 kg kvoða og 24 kg duft, til að fylla holur.
Í hverja blöndu fer Catalyst herðir: 0,20 kg við 0–15 °C og 0,10 kg við 15–35 °C. Á flötum með meiri halla en 2 % er notuð Repro R Thix, sem rennur ekki til.
Vinnsla
Pottlífið er um 10 mínútur við 20 °C og um 15 mínútur við 5 °C (25–30 mínútur með Thix). Aka má á viðgerðina eftir um 60 mínútur við 20 °C. Efnismagn er um 2 kg/m² á hvern millimetra. Litur 7021, svartgrár.
Fyrir smærri viðgerðir er til tilbúið sett án herðis, Triflex Easy Repair.
| Hluti | Repro R – kvoða, 5 kg, Repro R Thix – kvoða fyrir halla, 4 kg, Repro S – duft, 12 kg |
|---|



