-
Mánudaga - föstudaga 08:00 - 16:00
-
Staðsetning: Smiðjuvegur 5, 200 Kópavogur
-
Sími: 420 4010
Línóleumlím – Alfix ElastaCol 010
17.241 kr.
Leysiefnalaust lím fyrir allar gerðir línóleums og korkments. Hentar einnig fyrir textílgólfefni. Límið grípur fljótt og gólfið er fljótt tilbúið til notkunar.
- Fyrir línóleum, korkment og textílgólfefni
- Mikið upphafsgrip og mikill lokastyrkur
- Þolir stóla á hjólum, lítil útgufun (EMICODE EC1)
- 11 kg fata
Þú gætir einnig þurft
Alfix ElastaCol 010 línóleumlím
ElastaCol 010 er ljóst, þunnfljótandi lím úr fjölliðudreifu (dispersion) án leysiefna. Það er ætlað fyrir allar gerðir línóleums og korkments og hentar einnig fyrir textílgólfefni. Límið grípur hratt, er drjúgt og þolir álag frá stólum á hjólum.
Undirlag
Sementsbundið undirgólf má vera með mest 85 % RF og samloðunarstyrkur þarf að vera minnst 1 N/mm². Límið hentar einnig á harðar trétrefjaplötur, spónaplötur og krossvið. Undirlagið þarf að vera burðarhæft og laust við ryk og fitu. Steypt undirgólf er flotað, minnst 2 mm, t.d. með ElastaCem 506, og flotið slípað og ryksogið áður en límt er.
Vinnsla
Límið er borið á með tenntum spaða B1. Eftir stuttan loftunartíma er gólfefnið lagt í blautt límið, þrýst vel niður og valtað vandlega. Loftunartíminn fer eftir hita og því hve mikið undirlagið sýgur. Hiti í rými þarf að vera minnst 18 °C.
Tæknigögn
- Notkun: 260–300 g/m² með spaða B1
- Loftunartími: 0–15 mínútur
- Opinn tími: 15–30 mínútur
- Þornunartími: um 1 sólarhringur. Þolir létt álag strax eftir lögn
- Geymsla: minnst 12 mánuðir í óopnuðum umbúðum, má ekki frjósa
Ferskt lím er þrifið af verkfærum með vatni.
Nánari upplýsingar eru í tækniblaði framleiðanda undir Vöruskjöl.
| Þyngd | 11 kg |
|---|


