-
Mánudaga - föstudaga 08:00 - 16:00
-
Staðsetning: Smiðjuvegur 5, 200 Kópavogur
-
Sími: 420 4010
Íblöndunarefni í flot – Alfix PlaneMix Binder
24.000 kr.
Íblöndunarefni sem er hrært út í flot til að gera það teygjanlegra og sterkara á óstöðugu eða krefjandi undirlagi, t.d. timburgólfum, flísum og vínyl.
- Gerir flotið sveigjanlegra og slitsterkara
- Um 1,6 l í hvern 20 kg poka af floti
- Einnig sem viðloðunarlag á þétt undirlag
- 10 l fata, innanhúss í þurrum rýmum
Þú gætir einnig þurft
Alfix PlaneMix Binder
PlaneMix Binder er fjölliðudreifa sem er blandað út í flot frá Alfix til að gera það teygjanlegra og þola meiri hreyfingu. Það er notað á óstöðugt eða krefjandi undirlag, t.d. timburgólf, flísar, terrazzo, vínyl og stál, og gerir yfirborð flotsins jafnframt sterkara og slitþolnara. Efnið er grænleitt svo sést að það hefur verið notað.
Vinnsla
Um 1,6 l af PlaneMix Binder er sett í hvern 20 kg poka af floti, og vatnsmagnið minnkað á móti samkvæmt tækniblaði. Á þétt undirlag er fyrst borið viðloðunarlag úr PlaneMix Binder og floti, blandað 1:2, um 0,3 l af Binder á m². Steypa er grunnuð með PlaneMix Primer þynntum 1:3.
Nánari upplýsingar eru í tækniblaði framleiðanda undir Vöruskjöl.
| Þyngd | 10 kg |
|---|


