-
Mánudaga - föstudaga 08:00 - 16:00
-
Staðsetning: Smiðjuvegur 5, 200 Kópavogur
-
Sími: 420 4010
Flot, slitsterkt – Velosit SL 503
8.400 kr. / poki20 kg í poka
Hafðu samband fyrir afhendingartíma
Slitsterkt, sjálfjafnandi flot sem getur verið endanlegt yfirborð á steyptum gólfum, t.d. á lagerum og verkstæðum, eða undirlag undir húðun og gólfefni.
- 3–38 mm lag í einni umferð
- Gangfært eftir 3 klst., lyftarar eftir 16 klst.
- Yfir 60 MPa, flokkur CT-C60-F7
- 20 kg poki, má dæla
Þú gætir einnig þurft
Velosit SL 503
SL 503 er sterkara en venjulegt flot og myndar slétt yfirborð sem þolir slit. Það nær 20 MPa þrýstistyrk eftir 4 klst. og yfir 60 MPa eftir 28 daga. Það er notað inni og úti, bæði sem endanlegt yfirborð og undir húðun eða gólfefni.
Undir parket, dúk og vínyl dugar SL 502, og það má líka nota sem sjónflot þar sem álagið er minna. Fyrir enn meira slit og lyftaraumferð eftir 6 klst. er SL 507 (sérpöntun). Hersluefni og lökk sem vernda yfirborðið eru í flokknum hersluefni, lökk og sílan.
Vinnsla
Hrært með 21–22 % vatni (4,2–4,4 l í poka). Notkun er um 10,5 kg/m² í 6 mm lagi. Undirlagið er grunnað með PA 911, eða PR 303 ef steypan er rök. Undirlagið þarf að vera 10–35 °C. Flísar má leggja eftir 4 klst. og rakaviðkvæm gólfefni eftir 16 klst.
Samanburð á flotefnum, val á grunni og reiknidæmi finnur þú á síðunni um að flota gólf.
| Þyngd | 20 kg |
|---|---|
| Lagþykkt | 3–38 mm |
| Gangfært | Eftir 3 klst., lyftarar eftir 16 klst. |
| Flokkur | CT-C60-F7 (EN 13813) |
| Styrkur | Yfir 60 MPa eftir 28 daga |
| Efnisnotkun | Um 10,5 kg/m² í 6 mm lagi |
| Vatn | 4,2–4,4 l í 20 kg poka |
| Grunnur | PA 911 eða PR 303 |
| Umbúðir | 20 kg |









