Flísalím, hraðharðnandi, C2 FTE S1 – Velosit TA 706

6.335 kr.

Hraðharðnandi og sveigjanlegt flísalím með löngum opnum tíma. Hentar fyrir stórar flísar og náttúrustein, á veggi og gólf, inni og úti.

  • Flokkur C2 FTE S1 (EN 12004)
  • Fúgun og létt umferð eftir 3–4 klst.
  • Opinn tími um 30 mínútur
  • Hentar í votrými og á gólfhita, 20 kg poki

Þú gætir einnig þurft

Rakaþéttikvoða fyrir baðherbergi – Velosit DF 941 Price range: 7.880 kr. through 22.900 kr.
Veldu
Vörunúmer: Vel-TA706 Flokkar: , Lausn: Birgi:

Velosit TA 706

TA 706 er sementsbundið flísalím sem harðnar hratt og er sveigjanlegt (S1). Það rennur ekki á veggjum og hefur langan opinn tíma, svo það hentar vel fyrir stórar flísar. Límið er notað á gips, ílögn, steypu og hleðslu, á veggi og gólf, inni og úti, á gólfhita og í votrýmum með rakaþéttingu, t.d. DF 941.

Þar sem ekki liggur á er TA 705 hefðbundna flísalímið.

Vinnsla

Hver 20 kg poki er hrærður út í 5,6–6,4 l af vatni (28–32 %) þar til límið er kekkjalaust. Það er borið á með tenntum spaða og flísunum þrýst í blautt límið innan opna tímans. Hiti undirlags þarf að vera 5–35 °C.

Tæknigögn

  • Vinnslutími: um 45 mínútur
  • Opinn tími: um 30 mínútur
  • Fúgun og létt umferð: eftir 3–4 klst. við 23 °C
  • Límlag: mest 10 mm
  • Notkun á sléttu undirlagi: 2,5 kg/m² (6 mm tennur), 3,3 kg/m² (8 mm), 3,8 kg/m² (10 mm)
  • Litur: grár

Nánari upplýsingar eru í tækniblaði framleiðanda undir Vöruskjöl.

Þyngd20 kg
Velosit TA 706, hraðharðnandi flísalím, C2 FTE S1
Flísalím, hraðharðnandi, C2 FTE S1 – Velosit TA 706

6.335 kr.

Setja í körfu