-
Mánudaga - föstudaga 08:00 - 16:00
-
Staðsetning: Smiðjuvegur 5, 200 Kópavogur
-
Sími: 420 4010
Sýruhreinsir fyrir flísar – Alfix Rensevæske
2.500 kr.
Mildur sýruhreinsir sem leysir upp kalk og óhreinindi og fjarlægir sementsslæðu af nýjum flísum. Hentar í baðherbergjum og skemmir ekki króm eða ryðfrítt stál.
- Fyrir flísar, klinku, mósaík, vínyl og ryðfrítt stál
- Þynnt 1:5–1:10 með vatni
- Ekki á marmara eða glerung
- Fæst í 1 og 2½ l
Alfix Rensevæske
Rensevæske er mildur hreinsir á fosfórsýrugrunni með sápuefnum. Hann leysir upp kalk og óhreinindi og fjarlægir sementsslæðu af nýlögðum flísum, klinku og mósaík, og hentar því vel í baðherbergjum. Hann skemmir ekki króm eða ryðfrítt stál. Ekki má nota hann á marmara eða glerung.
Notkun
Flöturinn er vættur með hreinu vatni. Rensevæske er þynnt með vatni 1:5–1:10 og borið á með svampi. Eftir 5–10 mínútur er flöturinn skrúbbaður og skolaður með hreinu vatni. Sementsslæða er í fyrsta lagi hreinsuð 24–48 klst. eftir að fúgað var. Ef óvíst er hvort flöturinn þolir sýru er prófað á litlum fleti fyrst. 1 l dugar á 20–40 m².
Nánari upplýsingar eru í tækniblaði framleiðanda undir Vöruskjöl.
| Umbúðir | 1 l |
|---|


