Grunnpússning, trefjastyrkt – Alfix DuraPuds 810

6.490 kr.

Trefjastyrkt og sveigjanleg grunnpússning sem er lögð með glertrefjaneti yfir einangrun eða á undirlag þar sem hætta er á sprungum. Er alltaf kláruð með lokapússningu.

  • 2–10 mm lag, inni og úti
  • Mikil viðloðun og sveigjanleiki, dregur úr sprungumyndun
  • Vatnsfráhrindandi, hleypir rakagufu í gegn, óbrennanleg
  • 20 kg poki, grá
Vörunúmer: ALF-5505 Flokkar: , Birgi:

Alfix DuraPuds 810

DuraPuds 810 er sementsbundin grunnpússning styrkt með trefjum. Hún er lögð með glertrefjaneti yfir einangrun úr steinull eða plasti (EPS/XPS) sem fest hefur verið með DuraPuds 830, og á undirlag þar sem hætta er á sprungum, t.d. steypu, hleðslu og léttsteypu. Pússningin er vatnsfráhrindandi, hleypir rakagufu í gegn og er óbrennanleg.

DuraPuds 810 er grunnpússning og er alltaf kláruð með lokapússningu, t.d. DuraPuds 804.

Vinnsla

Hver 20 kg poki er hrærður út í 4,0–4,8 l af hreinu, köldu vatni og hrærður aftur eftir nokkrar mínútur. Notkun er um 1,2 kg/m² á hvern mm. Unnið er við 5–25 °C.

Tæknigögn

  • Vinnslutími: 3–4 klst. við 20 °C
  • Þornunartími: 24 klst. við minnst 15 °C
  • Fullhörðnuð: eftir 7 sólarhringa við minnst 15 °C
  • Þrýstistyrkur: yfir 6 N/mm²
  • Brunaflokkur: óbrennanleg

Nánari upplýsingar eru í tækniblaði framleiðanda undir Vöruskjöl.

Þyngd20 kg

Tækniblað DuraPuds 810 (danska)

Sækja
Alfix DuraPuds 810, trefjastyrkt grunnpússning, 20 kg
Grunnpússning, trefjastyrkt – Alfix DuraPuds 810

6.490 kr.

Setja í körfu