-
Mánudaga - föstudaga 08:00 - 16:00
-
Staðsetning: Smiðjuvegur 5, 200 Kópavogur
-
Sími: 420 4010
Lím fyrir einangrun á útveggi – Alfix DuraPuds 830
9.150 kr.
Létt og sveigjanlegt sementsbundið lím sem festir einangrun úr steinull eða plasti (EPS/XPS) á steypu og hleðslu. Jafnar líka ójöfnur í veggnum áður en einangrað er.
- Fyrir steinull og EPS/XPS
- 3–30 mm lag, inni og úti
- Léttara en hefðbundið lím og drjúgt
- 18 kg poki, ljósgrátt
Þú gætir einnig þurft
Alfix DuraPuds 830
DuraPuds 830 er létt, sveigjanlegt og sementsbundið lím til að festa einangrunarplötur úr steinull eða plasti (EPS/XPS) á útveggi úr steypu, hleðslu, léttsteypu og frauðsteypu. Það er stíft og helst á veggnum, svo einnig má nota það til að fylla í dældir og jafna ójöfnur, allt að 30 mm á stöku stað og mest 10 mm í heilu lagi.
Límið er fyrsti hluti múrkerfisins. Yfir einangrunina kemur DuraPuds 810 grunnpússning með neti og síðan DuraPuds 804 lokapússning.
Vinnsla
Undirlagið þarf að vera burðarhæft og hreint. Mjög gleypið undirlag er grunnað með PlaneMix Primer þynntum 1:6. Hver 18 kg poki er hrærður út í 4,7–5,0 l af hreinu, köldu vatni.
- Ójafnt undirlag: límið er borið í um 5 cm breiðan streng meðfram brún plötunnar og í þrjá lófastóra klatta á miðjuna. Límflöturinn þarf að vera minnst 50 %.
- Slétt undirlag: límið er borið á allan bakflöt plötunnar með minnst 10 × 10 mm tenntum spaða.
Plöturnar eru lagðar í múrsteinsmynstri og þétt saman, án líms í samskeytum. Einangrunardyflar eru settir þegar límið hefur harðnað, yfirleitt eftir 1–2 sólarhringa. Unnið er í þurru veðri við 5–25 °C og ekki í beinni sól. Ekki er mælt með pússningu utanhúss að vetri.
Nánari upplýsingar eru í tækniblaði framleiðanda undir Vöruskjöl.
| Þyngd | 18 kg |
|---|


