Grunnur á þétt undirlag – Velosit SG 915

10.974 kr.

Fljótþornandi grunnur án leysiefna fyrir slétt og þétt undirlag, t.d. gamlar flísar, áður en flotað er, límt eða flísalagt. Hentar einnig á steypu, hleðslu og gips.

  • Fyrir gamlar flísar og þétt undirlag
  • Þornar á um 1 klst.
  • Mjög lítil útgufun (EMICODE EC1 Plus)
  • 5 kg fata, fjólublár
Vörunúmer: Vel-SG915-5 Flokkar: , Lausn: Birgi:

Velosit SG 915

SG 915 er grunnur úr fjölliðudreifu (dispersion) með fylliefnum sem bæta viðloðun. Hann er ætlaður fyrir slétt og þétt undirlag sem lím og flot festast illa á, t.d. gamlar flísar, en hentar einnig á steypu, hleðslu, gleypinn náttúrustein, gips og gipsplötur, á veggi og gólf, inni og úti. Grunnurinn er fjólublár, svo auðvelt er að sjá hvar hefur verið borið á.

Vinnsla

Grunninum er hrært upp og hann borinn á með pensli eða rúllu. Á gleypnu undirlagi má þynna hann með allt að jöfnum hluta af vatni. Notkun er um 50–250 g/m² eftir því hve gróft og gleypið undirlagið er. Grunnurinn þornar á um klukkustund við 23 °C. Hiti undirlags þarf að vera 5–45 °C.

Raki í ílögn má mest vera 2,0 % í sementsílögn (1,8 % með gólfhita) og 0,5 % í anhýdrítílögn.

Nánari upplýsingar eru í tækniblaði framleiðanda undir Vöruskjöl.

Þyngd5 kg
Velosit SG 915, grunnur á þétt undirlag, 5 kg
Grunnur á þétt undirlag – Velosit SG 915

10.974 kr.

Setja í körfu