Lím fyrir teppaflísar – Alfix ElastaCol 035

29.990 kr.

Lím frá Alfix sem heldur teppaflísum á sínum stað án þess að líma þær varanlega. Flísunum má síðar lyfta upp og skipta út.

  • Helst klístrað eftir að það þornar
  • Þolir álag frá skrifstofustólum á hjólum
  • Leysiefnalaust, EMICODE EC1
  • 10 l fata (11,5 kg)
Vörunúmer: ALF-6630 Flokkur: Lausn: Birgi:

Alfix ElastaCol 035 – lím fyrir teppaflísar

ElastaCol 035 er hvítt, þunnfljótandi og vatnsbundið lím, ætlað fyrir teppaflísar sem ekki á að líma varanlega niður. Límið þornar í glæra filmu sem helst klístruð. Flísarnar sitja því fastar og þola álag frá stólum á hjólum, en það má lyfta þeim upp og skipta út ef blettur kemur í þær eða þær slitna.

Límið er borið á með pensli eða málningarrúllu. Eftir 30–60 mínútur, þegar það hefur þornað í glæra filmu, eru flísarnar lagðar og þrýst vel niður. Létt umferð er leyfð strax eftir lögn og límið er fullþornað eftir um sólarhring.

Undirlag

  • Sementsbundin gólf, mest 85 % raki og togstyrkur minnst 1 N/mm²
  • Harðar trefjaplötur, spónaplötur og krossviður
  • Undirlagið þarf að vera burðarhæft og laust við ryk og fitu. Flotuð gólf eru slípuð og ryksuguð.
  • Ójöfn gólf eru jöfnuð með floti frá Alfix, minnst 2 mm

Efnisnotkun

Þétt undirlag (sogar ekki)50–100 g/m²
Sogandi undirlag100–150 g/m²

Teppaflísar með grófa bakhlið geta þurft allt að tvöfalt magn, og stundum aðra umferð af lími.

Tækniupplýsingar

FramleiðandiAlfix (Danmörk)
GrunnefniFjölliðudreifa, vatnsbundin
LiturHvítt, þornar glært
ÁhöldPensill eða málningarrúlla
Biðtími fyrir lögn30–60 mín.
Full þornunUm 1 sólarhringur
Hiti í rýmiMinnst +18 °C
Hiti undirlagsMinnst +15 °C
Rakastig lofts40–80 %
GólfhitiSlökkt 24 klst. fyrir og eftir lögn, síðan hækkað um mest 5 °C á sólarhring
LosunEMICODE EC1, leysiefnalaust
Umbúðir10 l plastfata (11,5 kg)
GeymslaMinnst 12 mánuðir, frostfrítt í óopnuðum umbúðum

Verkfæri eru þrifin með vatni áður en límið harðnar. Hellt lím er þurrkað upp með rökum klút.

Þyngd14 kg

Tækniblað ElastaCol 030 (danska)

Sækja

Öryggisblað Alfix ElastaCol-lím og grunna (danska)

Sækja
Alfix ElastaCol 035, lím fyrir teppaflísar, 10 l fata
Lím fyrir teppaflísar – Alfix ElastaCol 035

29.990 kr.

Setja í körfu