-
Mánudaga - föstudaga 08:00 - 16:00
-
Staðsetning: Smiðjuvegur 5, 200 Kópavogur
-
Sími: 420 4010
Filtmúr og þéttimúr, hagkvæmur – Velosit WP 100
5.227 kr.
Hafðu samband fyrir afhendingartíma
Hagkvæmur, sementsbundinn þéttimúr fyrir steypu og hlaðna veggi, t.d. í kjöllurum, lyftugryfjum og vatnstönkum. Hann er líka mikið notaður sem filtmúr á veggi, því áferðin verður mjög slétt og fín.
- Þolir 5 bar vatnsþrýsting að framan og 1,5 bar að aftan
- Um 2 mm lag í 1–2 umferðum
- Slétt og fín áferð sem filtmúr
- 20 kg poki, grár
Þú gætir einnig þurft
Velosit WP 100
WP 100 er einfaldari og ódýrari útgáfa af WP 101. Hann er notaður á sömu staði, en þolir minni vatnsþrýsting: 5 bar að framan og 1,5 bar að aftan, á móti 13 og 5 bar í WP 101. Hann hentar því vel þar sem vatnsþrýstingur er hóflegur, t.d. gegn jarðraka í kjöllurum og raka sem leitar upp í veggi. Hann er líka notaður sem grunnlag undir teygjanlega þéttingu.
Á veggi sem hreyfast eða eru sprungnir er teygjanlegi WP 120 betri kostur, og CW 111 þéttir steypuna sjálfa með kristöllum.
Sem filtmúr
Margir nota WP 100 til að filta veggi, því hann gefur mjög slétta og fína áferð. Veggurinn fær þá um leið vatnsfælið og slitsterkt yfirborð sem ver gegn raka.
Vinnsla
Hrærður með 21–26 % vatni (4,2–5,2 l í poka) og kústaður í tveimur umferðum, 1,7 kg/m² hvor, eða dreginn á í einni. Minnst 3 klst. milli umferða. Ganga má á hann eftir 4–6 klst. og hann þolir vatnsþrýsting eftir 3 daga. Undirlagið þarf að vera 5–35 °C.
Fleiri efni til að þétta kjallara og vatnstanka eru í flokknum þéttimúr og vatnsþétting.
| Vatnsþrýstingur | 5 bar að framan, 1,5 bar að aftan |
|---|---|
| Lagþykkt | Um 2 mm í 1–2 umferðum |
| Efnisnotkun | 1,7 kg/m² í umferð (kústað) |
| Styrkur | 30 MPa eftir 28 daga |
| Flokkur | R3 (EN 1504-3) |
| Vatn | 4,2–5,2 l í 20 kg poka |
| Litur | Grár |
| Umbúðir | 20 kg |






