-
Mánudaga - föstudaga 08:00 - 16:00
-
Staðsetning: Smiðjuvegur 5, 200 Kópavogur
-
Sími: 420 4010
Flot, sjálfjafnandi – Alfix ElastaCem 503
3.480 kr.
Grátt, sjálfjafnandi og hraðharðnandi flot til að slétta og rétta af steypt gólf, flísar og terrazzo áður en gólfefni er lagt.
- 3–30 mm lag, innanhúss
- Gönguhæft eftir 2–3 klst.
- Um 1,7 kg/m² á hvern mm
- Grunnað fyrst með Alfix PlaneMix Primer
- 20 kg poki
Þú gætir einnig þurft
Alfix ElastaCem 503 – sjálfjafnandi flot undir gólfefni
ElastaCem 503 er grátt, sjálfjafnandi flot úr álsementi, styrkt með plasti. Það er notað til að slétta og rétta af steypt gólf og ílagnir innanhúss áður en dúkur, vínyll, parket, flísar eða teppi eru lögð. Flotið rennur vel út, harðnar hratt og er gönguhæft eftir 2–3 klukkustundir. Það má leggja með höndum eða dæla því.
ElastaCem 503 er hagkvæmasta Alfix-flotið hjá okkur og hentar vel þegar undirlagið er steypa, flísar eða terrazzo. Ef flota þarf yfir viðargólf eða hitastrengi er ElastaCem 501 betri kostur, og í þunn lög er ElastaCem 506. Flotið er ekki slitlag og þarf alltaf að hylja með gólfefni.
Undirlag og grunnur
- Steypa, mest 95 % raki (RF)
- Keramískar flísar og terrazzo
- Undirlagið þarf að vera burðarhæft og laust við ryk, fitu og sementsslæðu. Slétt eða slæðukennt yfirborð er slípað og ryksugað.
- Allt undirlag er grunnað með Alfix PlaneMix Primer. Grunnurinn þarf að þorna og flota þarf innan sólarhrings. Ef flotað er í fleiri lögum er grunnað á milli laga.
Blöndun og lögn
Hver 20 kg poki er hrærður út í 4,0–4,5 l af hreinu, köldu vatni í um 2 mínútur með hrærivél. Í lög þykkari en 10 mm er notað minnsta vatnsmagnið. Flotið er vinnanlegt í um 30 mínútur við 20 °C. Ekki má bæta vatni út í þegar flotið er byrjað að harðna, og of mikið vatn dregur úr styrk. Þar sem notaðir verða skrifstofustólar á hjólum þarf lagið að vera minnst 4 mm.
Hvenær má leggja gólfefni?
Gólfið er gönguhæft eftir 2–3 klukkustundir. Miðað er við um eina viku á hvern cm lagþykktar áður en gólfefni er lagt, en það fer eftir raka í gólfinu og kröfum gólfefnisins, svo raki er mældur fyrst. Flotið er fullharðnað eftir 28 daga við 20 °C.
Tækniupplýsingar
| Framleiðandi | Alfix (Danmörk) |
| Grunnefni | Álsement, plaststyrkt |
| Lagþykkt | 3–30 mm (minnst 4 mm undir skrifstofustóla) |
| Efnisnotkun | Um 1,7 kg/m² á hvern mm |
| Vatn | 4,0–4,5 l í 20 kg poka |
| Vinnslutími | Um 30 mín. við 20 °C |
| Gönguhæft | Eftir 2–3 klst. |
| Þrýstistyrkur | 25–30 N/mm² |
| Beygjutogstyrkur | 6 N/mm² |
| Flokkun (EN 13813) | CT-C25-F6-AR0,5 |
| Brunaflokkur | A1fl |
| Vinnsluhiti | +10 til +25 °C |
| Dæling | Já |
| Umbúðir | 20 kg poki |
| Geymsla | Minnst 6 mánuðir í óopnuðum umbúðum |
Tækniblað frá Alfix (á dönsku).
| Umbúðir | 20 kg poki |
|---|






